Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 23. 2023 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Vikar Jónasson — 23. júlí 2022

Afmæliskylfingur dagsins er Vikar Jónasson. Vikar fæddist 23. júlí 1997 og er því 26 ára í dag! Vikar er í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði og spilaði í bandaríska háskólagolfinu með liði Southern Illinois University. Komast má á facebook síðu Vikars til þess að óska honum til hamingju með afmælið hér að neðan

Vikar Jónasson – Innilega til hamingju með 26 ára afmælið!!!

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Ken Green, 23. júlí 1958 (65 ára); Craig Barlow, 23. júlí 1972 (51 árs); Thomas Brent „Boo“ Weekley, 23. júlí 1973 (50 STÓRAFMÆLI!!!); Mikko Korhonen, 23. júlí 1980 (43 ára); Kiradech Aphibarnrat, 23. júlí 1989 (34 ára); Harris English, 23. júlí 1989 (34 ára); Sam Burns, 23. júlí 1996 (27 ára); Malín Brand ….. og …..

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is