Vikar Jónasson, GK. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 23. 2019 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Vikar Jónasson — 23. júlí 2019

Afmæliskylfingur dagsins er Vikar Jónasson. Vikar fæddist 23. júlí 1997 og er því 22 ára í dag! Vikar er í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði og spilar í bandaríska háskólagolfinu með liði Southern Illinois University. Komast má á facebook síðu Vikars til þess að óska honum til hamingju með afmælið hér að neðan

Vikar Jónasson – Innilega til hamingju með 22 ára afmælið!!!

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:

Ken Green, 23. júlí 1958 (61 árs); Craig Barlow, 23. júlí 1972 (47 ára); Thomas Brent „Boo“ Weekley, 23. júlí 1973 (46 ára); Mikko Korhonen, 23. júlí 1980 (39 ára); Kiradech Aphibarnrat, 23. júlí 1989 (30 ára STÓRAFMÆLI!!!); Harris English, 23. júlí 1989 (30 ára STÓRAFMÆLI!!!); Sam Burns, 23. júlí 1996 (23 ára) ….. og ….. Malín Brand

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is