Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 18. 2015 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Valgerður Kristín Olgeirsdóttir – 18. júní 2015

Afmæliskylfingur dagsins er Valgerður Kristín Olgeirsdóttir. Valgerður Kristín er er fædd 18. júní 1955 og á því 60 ára stórafmæli í dag! Valgerður Kristín hefir m.a. farið holu í höggi, en það afrekaði hún 10. júlí 2012 þ.e. fyrir u.þ.b. 3 árum. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska henni til hamingju með stórafmælið hér að neðan

1-a-VK

Valgerður Kristín Olgeirsdóttir (60 ára merkisafmæli – Innilega til hamingju!!!)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Jim Albus, 18. júní 1940 (75 ára); Auðun Helgason (41 árs); Árni Sæberg, 18. júní 1998 (17 ára)

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is