Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 4. 2020 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Valdís Þóra Jónsdóttir – 4. desember 2020

Það er LET kylfingurinn og Íslandsmeistarinn í höggleik kvenna 2012 – Valdís Þóra Jónsdóttir sem er afmæliskylfingur dagsins.

Valdís Þóra er fædd 4. desember 1989 og á því 31 árs afmæli í dag.

Valdís tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í höggleik á Hellu með lokapúttinu og samtals skori upp á 13 yfir pari, 293 höggum (71 75 72 75) í lok júlí 2012.

Valdís Þóra slær upphafshöggið á Íslands-mótinu í höggleik 2012. Mynd: Golf

Valdís Þóra hefir m.a. verið klúbbmeistari Golfklúbbsins Leynis í mörg ár og er nú íþróttastjóri klúbbsins.

Hún spilaði golf með golfliði Texas State í bandaríska háskólagolfinu, en þaðan útskrifaðist hún 2012.

Valdís Þóra þátt í HM kvennalandsliða áhugamanna í Tyrklandi í september 2012.

Valdís Þóra spilar hér heima á mótaröð þeirra bestu, hún hefir verið á LET Access frá árinu 2014 og frá 2017 á LET.

Árið 2019 spilaði Valdís Þóra einvörðungu á bestu mótaröð kvenkylfinga í Evrópu, LET (skammstöfun fyrir Ladies European Tour), þar sem hún er með fullan spilarétt.

Nú í ár, 2020, er Valdís Þóra, eins og svo oft áður, klúbbmeistari GL.

Sjá má eldra viðtal sem Golf 1 tók við Valdísi Þóru með því að SMELLA HÉR:

Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska henni til hamingju með daginn hér að neðan:

Valdís Þóra Jónsdóttir, GL. Mynd: GSÍ

Elsku Valdís Þóra – Innilega til hamingju með 31 árs afmælið!!!

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Pam Higgins, 4. desember 1945 (75 ára); Mary Bea Porter-King, 4. desember 1949 (71 árs); Björn T Hauksson (64 ára); Costantino Rocca, 4. desember 1956 (64 ára); Wesley Earl Short, Jr., 4. desember 1963 (57 ára); Jósep Þorbjörnsson (54 ára); Brynja Herborg Jonsd. (42 ára); Bergur Dan Gunnarsson (34 ára); Petrea Sigmundsdóttir, 4. desember 1989 (31 árs); Marissa Steen, 4. desember 1989 (31 árs) ….. og ……

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is