
Afmæliskylfingur dagsins: Valdís Þóra Jónsdóttir – 4. desember 2017
Það er LET kylfingurinn og Íslandsmeistarinn í höggleik kvenna 2012 – Valdís Þóra Jónsdóttir sem er afmæliskylfingur dagsins.
Valdís Þóra er fædd 4. desember 1989 og á því 28 ára afmæli í dag.
Valdís tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í höggleik á Hellu með lokapúttinu og samtals skori upp á 13 yfir pari, 293 höggum (71 75 72 75) í lok júlí 2012. Golf 1 tók viðtal við Valdísi Þóru fyrir lokadag mótsins sem rifja má upp með því að SMELLA HÉR:
Í ár, 2017, hefir Valdís Þóra bæði spilað á LET Access og LET mótaröðinni, en besti árangur hennar á LET er glæsilegt 3. sæti sem hún náði á Sanya Open í Kína, sem jafnframt er besti árangur íslensks kylfings á jafnstórri mótaröð og LET er.

Valdís Þóra slær upphafshöggið á Íslandsmótinu í höggleik 2012. Mynd: Golf 1
Valdís Þóra hefir m.a. verið klúbbmeistari Golfklúbbsins Leynis í mörg ár.
Hún spilaði golf með golfliði Texas State í bandaríska háskólagolfinu, en þaðan útskrifaðist hún 2012.
Valdís Þóra þátt í HM kvennalandsliða áhugamanna í Tyrklandi í september 2012.
Sjá má eldra viðtal Golf 1 við Valdísi Þóru með því að SMELLA HÉR:
Sumrinu 2014 hefir Valdís Þóra spilað á Eimskipsmótaröðinni og LET Access og frá 2017 á LET.
Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska henni til hamingju með daginn hér að neðan:

Valdís Þóra Jónsdóttir, GL. Mynd: GSÍ
Valdís Þóra Jónsdóttir (28 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!)
Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Pam Higgins, 4. desember 1945 (72 ára); Mary Bea Porter-King, 4. desember 1949 (68 ára); Björn T Hauksson (61 árs); Costantino Rocca, 4. desember 1956 (61 árs); Wesley Earl Short, Jr., 4. desember 1963 (54 ára); Jósep Þorbjörnsson (51 árs); Brynja Herborg Jonsd. (39 ára); Bergur Dan Gunnarsson (31 árs); Petrea Sigmundsdóttir, 4. desember 1989 (28 ára); Marissa Steen, 4. desember 1989 (28 ára) ….. og ……
Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!
Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is
- febrúar. 23. 2021 | 22:00 Tiger lenti í bílslysi í Genesis GV80
- febrúar. 2. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Jenny Sigurðardóttir – 2. febrúar 2021
- febrúar. 1. 2021 | 18:00 PGA: Reed sigraði á Farmers Insurance Open
- febrúar. 1. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Hildur Kristín Þorvarðardóttir – 1. febrúar 2021
- febrúar. 1. 2021 | 08:00 Evróputúrinn: Casey sigraði á Omega Dubai Desert Classic
- janúar. 31. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Justin Timberlake – 31. janúar 2021
- janúar. 30. 2021 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (5/2021)
- janúar. 30. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Payne Stewart ——- 30. janúar 2021
- janúar. 29. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Erlingur Snær Loftsson – 29. janúar 2021
- janúar. 29. 2021 | 14:45 Evróputúrinn: Detry leiðir í hálfleik á Omega Dubai Desert Classic
- janúar. 28. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Þórður Sigurel Arnfinnsson – 28. janúar 2021
- janúar. 28. 2021 | 12:00 Greg Norman selur „húsið“ sitt í Flórída
- janúar. 27. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Bryce Moulder og Mike Hill – 27. janúar 2021
- janúar. 26. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Karine Icher —— 26. janúar 2021
- janúar. 26. 2021 | 07:30 PGA Championship fer fram í Southern Hills 2022 í stað Trump Bedminster