Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 4. 2012 | 14:00

Afmæliskylfingur dagsins: Unnar Ingimundur Jósepsson – 4. apríl 2012

Það er Unnar Ingimundur Jósepsson, sem er afmæliskylfingur dagsins. Unnar er fæddur 4. apríl 1967 og á því 45 ára afmæli í dag! Unnar er í Golfklúbbi Seyðisfjarðar, GSF. Unnar byrjaði að spila golf 1996 og er með 7,6 í forgjöf.  Uppáhaldsgolfvöllur hans er að sjálfsögðu heimavöllurinn, Hagavöllur á Seyðisfirði. Helsta afrek Unnars til dagsins í dag er að spila Hagavöll á parinu á Opna Brimbergsmótinu 2007 og setja vallarmet.

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  JoAnne Carner, 4. apríl 1949 (63 ára);  Matt Cole, 4. apríl 1961 (51 árs); Sherrin Smyers, 4. apríl 1962 (50 ára stórafmæli!!!); Tina Tombs, 4. apríl 1962 (50 ára stórafmæli!!!); Gregory Thomas Kraft, 4. apríl 1964 (48 ára); Golfklúbbur Ness, 4. apríl 1964 (48 ára)… og…


F. 4. apríl 1976 (36 ára)

F. 4. apríl 1989 (23 ára)

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is