Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 4. 2018 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Unnar Ingimundur Jósepsson – 4. apríl 2018

Það er Unnar Ingimundur Jósepsson, sem er afmæliskylfingur dagsins. Unnar er fæddur 4. apríl 1967 og á því 51 árs afmæli í dag! Unnar er í Golfklúbbi Seyðisfjarðar, GSF. Unnar byrjaði að spila golf 1996 og er með 7,6 í forgjöf. Uppáhaldsgolfvöllur hans er að sjálfsögðu heimavöllurinn, Hagavöllur á Seyðisfirði. Helsta afrek Unnars til dagsins í dag er að spila Hagavöll á parinu á Opna Brimbergsmótinu 2007 og setja vallarmet. Sjá má skemmtilegt eldra viðtal við afmæliskylfinginn á Golf 1 með því að SMELLA HÉR:

Þess mætti loks geta í þessari stuttu samantekt að Unnar er mjög hæfileikaríkur ljósmyndari s.s. m.a. margir kylfingar hafa fengið að njóta.

Komast má á heimasíðu Unnars til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan:

Unnar Ingimundur Jósepsson (51 árs – Innilega til hamingju með stórafmælið!!!)

Aðrir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: JoAnne Carner, 4. apríl 1949 (69 ára); Matt Cole, 4. apríl 1961 (57 ára); Sherrin Smyers, 4. apríl 1962 (56 ára); Tina Tombs, 4. apríl 1962 (56 árs); Gregory Thomas Kraft, 4. apríl 1964 (54 ára); Golfklúbbur Ness, 4. apríl 1964 (54 ára); Audrey Riguelle, frönsk – spilar á LET Access, 4. apríl 1984 (34 ára); Jórunn Pála Jónasdóttir, 4. apríl 1989 (29 ára) ….. og ….. Hexia Búninga Og Fataleiga, 4. apríl 1976 (42 ára) og Kjólakistan Föt Og Fylgihlutir

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is