Þórður Rafn
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 8. 2017 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Þórður Rafn Gissurarson – 8. september 2017

Það er Þórður Rafn Gissurarson, sem er afmæliskylfingur dagsins. Þórður Rafn er fæddur 8. september 1987 og á því 30 ára merkisafmæli í dag. Þórður Rafn hefir verið að spila á undanförnum árum á þýsku Pro Golf mótaröðinnni með góðum árangri. Komast má á facebooksíðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan

Þórður Rafn

Þórður Rafn

Þórður Rafn Gissurarson – Innilega til hamingju með 30 ára stórafmælið!!!

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Ólína Þorvarðardóttir, 8. september 1958 (59 ára); Margrét Elsa Sigurðardóttir, 8. september 1966 (51 árs);  Ólafur William Hand, 8. september 1968, GR (49 ára); Cyna Rodriguez, frá Filippseyjum (spilar á LPGA), 8. september 1991 (26 ára) ….. og ……

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is