Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 28. 2016 | 17:45

Afmæliskylfingur dagsins: Þór Ríkharðsson – 28. apríl 2016

Afmæliskylfingur dagsins er Þór Ríkharðsson, en hann er fæddur 28. apríl 1985 og á því 31 árs afmæli í dag. Þór er í Golfklúbbi Sandgerðis (GSG). Þór var nú nýverið á besta skorinu (71 glæsihöggi) í afmælismóti Golfklúbbs Sandgerðis, sem fagnaði 30 ára merkisafmæli sínu … en Þór er 1 ári eldri en klúbburinn!!! Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með merkisafmælið, hér fyrir neðan:

Þór Ríkharðsson, á 30 ára afmælismóti GSG, 24. apríl 2016. Mynd: Golf 1

Þór Ríkharðsson 28. apríl 1985 (31 árs afmæli – Innilega til hamingju Þór!!!)

Aðrir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru m.a. Sven Tumba Johannsson, f, 28. ágúst 1931 – d. 1. október 2011); Þorsteinn R. Þórsson, 28. apríl 1960 (56 ára); Stephen Michael Ames 28. apríl 1964 (52 ára); John Daly 28. apríl 1966 (50 ára STÓRAFMÆLI!!!); Elliði Vignisson, bæjarstjóri Vestmannaeyja, 28. apríl 1969 (47 ára); Jiyai Shin 28. apríl 1988 (28 ára) og

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is