Afmæliskylfingur dagsins: Suzann Pettersen – 7. apríl 2018
Afmæliskylfingur dagsins er Suzann Pettersen, en hún er fædd í Osló 7. apríl 1981 og því 37 ára í dag. Suzann er ja kannski er það vel við hæfi í dag, nr. 37 á Rolex-heimslista kvenna og hefir hæst náð að vera í 2. sæti 2011 og 2013, en tókst aldrei að vera nr. 1. Suzann erþekktust fyrir að vera sá kvenkylfingur á LPGA, sem stundar mestu líkamsræktina. Suzann gerðist atvinnumaður í golfi árið 2000 og spilar í dag bæði á LPGA og LET. Hún hefir á ferli sínum unnið 22 titil þ.e.: 15 á LPGA, 7 á LET og síðan vann hún óopinbert mót með Natalie Gulbis og Cristie Kerr, Wendy´s 3 Tour Challenge árið 2009.
Suzann hefir 8 sinnum (2002, 2003, 2005, 2007, 2009 ,2011, 2013 og 2015) tekið þátt í Solheim Cup liði Evrópu og var lykilkona í sigri Evrópu í Killeen Castle 2011 og í Bandaríkjunum 2013. Hún varð fræg að endemum í Solheim Cup 2015 þegar hún stóð fast á golfreglunum og kom illa fram við nýliðann Alison Lee í bandaríska liðinu, sem varð til þess að þær bandarísku unnu Solheim Cup 2015 í koltapaðri stöðu! Sjokkið eftir viðbrögð fjölmiðla og áhanganda hafa e.t.v. haft sitt að segja í því að Suzann var ekki í Solheim Cup liði Evrópu 2017.
Nýjustu fréttir af Suzann eru þær að hún er gift og ófrísk – Sjá frétt Golf 1 um það með því SMELLA HÉR:
Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Þórhallur Teitsson, 7. apríl 1949 (69 ára); Einar Jóhann Herbertsson, 7. apríl 1954 (64 ára); Donna White, 7. apríl 1954 (64 ára); Gail Lee Hirata, 7. apríl 1956 (62 ára); Helen Wadsworth, 7. apríl 1964 (54 ára); Joe Durant, 7. apríl 1964 (54 ára); Borja Echart, 7. apríl 1988 (30 ára STÓRAFMÆLI!!!); Joseph Bramlett, 7. apríl 1988 (30 ára STÓRAFMÆLI!!!)…. og ….Humarhöfnin Veitingahús og Kristine G Alexandria
Golf 1 óskar öllum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!
Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
