Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 28. 2014 | 21:00

Afmæliskylfingur dagsins: Steinunn Sæmundsdóttir – 28. nóvember 2014

Afmæliskylfingur dagsins er  Steinunn Sæmundsdóttir, GR, tvöfaldur Íslandsmeistari í golfi í flokki 50+ 2010 og 2011 sem og Íslandsmeistari í sveitakeppni GSÍ með sveit eldri kvenna í GR, þ.e. 2011, 2012 og 2013.

Sigursveitir GR í 1. flokki eldri kylfinga - Steinunn er í fremri röð lengst til vinstri

Steinunn fæddist í Reykjavík 28. nóvember 1960. Hún byrjaði í golfi 14 ára og gekk í GR 1974. Aðaldriffjöðurin í golfleiknum var bróðir Steinunnar, Óskar en hún dró oft fyrir hann. Jafnhliða fjölda Íslandsmeistaratitla í golfi og klúbbmeistaratitla hjá GR er afmæliskylfingurinn okkar  12-faldur Íslandsmeistari á skíðum. Í dag er Steinunn með 5,5 í forgjöf.

Steinunn er 4 barna móðir þeirra Sæunnar Ágústu 31 árs; Hlyns Heiðars, 31 árs; Söndru Rós, 18 ára og Sigrúnar Ásu 14 ára. Eins á Steinunn 4 barnabörn: þá Hlyn Viðar 5 ára og Henrik Viðar 4 ára, Jóhannes Viðar 7 ára og Steinunni Lilju 5 ára.

Sjá má eldra viðtal Golf 1 við Steinunni með því að SMELLA HÉR: 

Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska henni til hamingju með daginn hér að neðan:

Steinunn Sæmundsdóttir 

54 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru m.a.: Dick Rhyan, 28. nóvember 1934 (80 ára stórafmæli!!!); David Ecob, 28. nóvember 1965 (49 ára); Anna Rún Sigurrósardóttir, GO, f. 28. nóvember 1968 – d. 1. febrúar 2014 (46 ára); Evan Droop, 28. nóvember 1970 (44 ára); Vaughn Groenewald, 28. nóvember 1974 (spilar á Sólskinstúrnum, 40 ára stórafmæli!!!) og Angela Stanford f. 28. nóvember 1977 (37 ára); Sveinn Orri Snæland, GR, 28. nóvember 1981 (33 ára) …. og …..

Atli Þór Þorvaldsson 

51 árs – Innilega til hamingju með afmælið!!!

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is