Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 4. 2015 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Stefanía Kristín Valgeirsdóttir – 4. júlí 2015

Afmæliskylfingur dagsins er Stefanía Kristín Valgeirsdóttir. Stefanía er fædd 4. júlí 1992 og á því 23 ára afmæli í dag! Stefanía er í Golfklúbbi Akureyrar og varð púttmeistari klúbbsins 2012 og er þar að auki margfaldur klúbbmeistari, m.a. klúbbmeistari GA 2014.  Stefanía útskrifaðist frá MA, 17. júní 2012 og hefir spilað í bandaríska háskólagolfinu með kvennaliði Pfeiffer háskóla The Falcons með góðum árangri.

Stefanía Kristín Valgeirsdóttir, klúbbmeistari kvenna í GA 2014. Mynd: Golf 1

Stefanía Kristín Valgeirsdóttir, klúbbmeistari kvenna í GA 2014. Mynd: Golf 1

Stefanía Kristín  tók nú í ár þátt í því þekkta móti þeirra GA-inga Arctic Open sem fram fór 25.-27. júní á þessu ári.  Mótsgögn voru afhent á fyrsta degi 25. júní sl. og síðan voru keppnisdagar, skv. venju tveir; 26. og 27. júní að þessu sinni. Á seinni keppnisdag setti Stefanía Kristín nýtt vallarmet af rauðum, sem líklega á eftir að standa lengi en hún lék seinni hring Arctic Open á 2 yfir pari 73 glæsihöggum!!! Á hringnum fékk hún einn tvöfaldan skolla, 2 skolla og 2 fugla sem og 13 pör. Glæsilegur kylfingur hún Stefanía Kristín!!!

Til þess að sjá eldra viðtal Golf 1 við Stefaníu SMELLIÐ HÉR:   (Innilega til hamingju með afmælið Stefanía Kristín!!!)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Stefán Garðarsson, 4. júlí 1964 (51 árs); Örn Stefánsson 4. júlí 1966 (49 ára); Arnar Olsen Richardsson, 4. júlí 1968  (47 ára); Þórunn Sif Friðriksdóttir, 4. júlí 1971 (44 ára); Jón Ævarr Erlíngsson, 4. júlí 1973 (42 ára); Mix DeTrix, 4. júlí 1975 (40 ára stórafmæli!!! – Innilega til hamingju!!!),  …. og Yesmine Olsson

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is