Stefanía Elsa Jónsdóttir, GA. Mynd:: Í einkaeigu
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 5. 2015 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Stefanía Elsa Jónsdóttir – 5. desember 2015

Afmæliskylfingur dagsins er Stefanía Elsa Jónsdóttir. Stefanía Elsa er fædd 5. desember 1996 og því 19 ára í dag. Hún er afrekskylfingur Golfklúbbs Akureyrar. Árið 2012 hlaut Stefanía Elsa m.a. heiðursnafnbótina Fyrirmyndarkylfingur GA.

Hún varð t.a.m. í 10. sæti á stigalista GSÍ í stúlknaflokki 2013. Í fyrra sigraði Stefanía Elsa eftirminnilega í Kvennamóti Vita og Forever og er aðeins fátt eitt talið hér á glæstum ferli Stefaníu Elsu.

Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska henni til hamingju með afmælið hér að neðan:

Stefanía Elsa Jónsdóttir, GA. Mynd:: Í einkaeigu

Stefania Elsa Jónsdóttir (19 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Helen Dettweiler, f. 5. desember 1914 – 13. nóvember 1990; Beverly Hanson, 5. desember 1924 (91 árs); Lanny Wadkins, 5. desember 1949 (66 ára); Bjórvettlingar Leikur Í Gangi (65 ára); Anthony Irvin „Tony“ Sills, 5. desember 1955 (60 ára stórafmæli!!!); Árni Ægir Friðriksson, 5. desember 1964 (51 árs);  Ragný Þóra Guðjohnsen, 5. desember 1966 (49 ára); Kjartan Magnússon, 5. desember 1967 (48 ára);  Chang-Ting Yeh (Taíwan), 5. desember 1968 (47 ára); Andrea Maestroni (Ítali), 5. desember 1976 (41 árs); Íris Björg Kristjánsdóttir, 5. desember 1973 (42 ára);  Guðmundur Valgeir Gunnarsson, 5. desember 1977 (38 ára); Gloriana Soto (Costa Rica), 5. desember 1986 (29 ára); Tónastöðin Akureyri (28 ára); Mi Jung (MJ) Hur, 5. desember 1989 (26 ára); Anna Svenstrup, 5. desember 1991 (24 ára) ….. og ….

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is