
Afmæliskylfingur dagsins: Stefán Már Stefánsson – 15. mars 2013
Það er Stefán Már Stefánsson, GR, sem er afmæliskylfingur dagsins. Stefán Már er fæddur 15. mars 1985 og er því 28 ára í dag. Stefán Már er stigameistari GSÍ 2011 og spilaði vorið 2012 á EPD-mótaröðinni þýsku, í Tyrklandi og Marokkó með góðum árangri og síðan á Eimskipsmótaröðinni hér heima s.l. sumar. Margs er að geta á löngum og farsælum ferli Stefáns Más og verður hér bara stiklað á stóru:
Stefán Már hefir a.m.k. tvívegis farið holu í höggi á 2. og 17. braut í Grafarholtinu. Hann hefir m.a. átt fast sæti í liði GR í sveitakeppni karla og liði Reykjavíkur í bikarnum og spilað á stigamótaröð GSÍ.
2010 Í byrjun árs tók Stefán Már þátt í EPD-mótaröðinni og var við æfingar í Orlandó. Meiðsl í úlnlið voru að há Stefáni Má mestallt sumarið.
2009 Stefán Már spilaði m.a. á H15 mótaröðinni. Um vorið keppti hann á EPD-mótaröðinni m.a. í Sviss. Í júlí varð Stefán Már klúbbmeistari GR í 2. sinn. Í ágúst setti Stefán Már vallarmet í Öndverðarnesinu, 65 högg.
2008 Það ár hóf Stefán Már á æfingaferð á vegum GSÍ til Eagle Creek í Flórída og seinna í janúarmánuði tók hann þátt í LaSella mótinu á Alicante. Í febrúar tók Stefán Már þátt í Valle del Este mótinu og var síðan á æfingum með Team Iceland á Arcos Garden. Í sama mánuði reyndi Stefán Már að komast inn á Opna spænska áhugamannamótið, sem tókst ekki. Í apríl var Stefán í karlaliði Íslands á Sherry Cup, á Sotogrande vellinum (sem Golf 1 mun kynna á næstunni). Í maí spilaði Stefán Már síðan á þýsku EPD mótaröðinni. Í júlí tók Stefán Már þátt í Evrópumóti karla á Ítalíu.
2007 tók Stefán Már m.a. þátt í Opna HansGrohe áhugamannamótinu á Kýpur og Opna austurríska áhugamannamótinu og Evrópumóti landsliða áhugamanna, sem fram fór á Western Gailes golfvellinum í Skotlandi. Hann vann á 6. stigamóti Kaupþingsmótaraðarinnar, sem fram fór í Eyjum, þetta árið. Seint um árið fluttist hann til Lúxemborgar og bjó m.a. hjá Birgi Leif Hafsteinssyni og dró fyrir hann á þeim úrtökumótum, sem Birgir Leifur tók þátt í.
Stefán Már spilaði á lokamóti Faldo series 2006 og auk þess á Heimsmóti áhugamanna í Suður-Afríku, sem og að hann reyndi fyrir sér á sænsku mótaröðinni það sama ár.
Komast má á facebook síðu Stefáns Más til þess að óska honum til hamingju með afmælið hér að neðan
-
Stefán Már Stefánsson (Innilega til hamingju með afmælið!!!)
Aðrir frægir kylfingar, sem eiga afmæli í dag eru: Tsuyoshi Yoneyama, 15. mars 1965 (48 ára), Helen Beatty (áströlsk), 15. mars 1975 (38 ára), Christina Kim, 15. mars 1984 (29 ára) … og …
Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum, sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!
Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is
- janúar. 24. 2021 | 17:00 Levy vann geggjaðan BMW með flottum ás!
- janúar. 24. 2021 | 16:30 Evróputúrinn: Tyrrell Hatton sigraði á Abu Dhabi HSBC mótinu!
- janúar. 24. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Ingvar Jónsson – 24. janúar 2021
- janúar. 24. 2021 | 08:00 PGA Tour Champions: Darren Clarke sigraði á Hawaii!
- janúar. 23. 2021 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (4/2021)
- janúar. 23. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Yani Tseng ———– 23. janúar 2021
- janúar. 22. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Alfreð Brynjar Kristinsson – 22. janúar 2021
- janúar. 22. 2021 | 12:00 Cheyenne Woods í kaddýstörfum fyrir kærastann
- janúar. 22. 2021 | 11:58 Brooke Henderson endurnýjar samning við PING
- janúar. 22. 2021 | 10:00 PGA: Hagy sem kom í stað Jon Rahm leiðir e. 1. dag American Express
- janúar. 22. 2021 | 08:00 LPGA: Kang í forystu e. 1. dag Diamond Resorts TOC
- janúar. 21. 2021 | 19:30 Evróputúrinn: Rory efstur e. 1. dag í Abu Dhabi
- janúar. 21. 2021 | 18:00 Tiger ekkert of hrifinn af nýrri heimildarmynd um sig
- janúar. 21. 2021 | 15:49 Afmæliskylfingur dagsins: Davíð og Jónas Guðmundssynir og Rósa Ólafsdóttir – 21. janúar 2021
- janúar. 21. 2021 | 10:00 Orð Justin Thomas eftir að Ralph Lauren rifti styrktarsamningi við hann