Ragnheiður Jónsdóttir | september. 21. 2013 | 20:35

Afmæliskylfingur dagsins: Sólveig Leifsdóttir – 21. september 2013

Það er Sólveig Leifsdóttir sem er afmæliskylfingur dagsins. Sólveig er fædd 21. september 1951. Hún er í Golfklúbbi Ísafjarðar. Sólveig er góður kylfingur og það er sannkölluð ánægja og heiður að spila golf með henni; hún er góður félagi utan vallar sem innan.

Komast má á Facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með afmælið hér að neðan:

Sólveig Leifsdóttir  (Innilega til hamingju með afmælið!!!)
Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:   Hannes Jóhannsson, GSG, 21. september 1979 (34 ára);   Lia Biehl, (spilaði á LPGA) 21. september 1969 (44 ára) ….. og …..

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is