Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 26. 2017 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Sir Henry Cotton og Vilhjálmur Einar Einarsson – 26. janúar 2017

Afmæliskylfingur dagsins er Sir Henry Thomas Cotton, KCMG og MBE, en hann fæddist 26. janúar 1907 og hefði því orðið 110 ára í dag, hefði hann lifað, en Henry dó 22. desember 1987 og er því 30 ára afmæli dánardægurs hans jafnframt síðar á þessu ári.

Henry fæddist í Holmes Chapel í Cheshire á Englandi. Hann er þekktastur fyrir að hafa unnið Opna breska risamótið þrisvar sinnum, 1934, 1937 og 1948.

Eins var Sir Henry 4 sinnum í breska Ryder Cup liðinu og fyrirliði þess tvívegis.

Eftir að hann hætti keppnisgolfi varð hann golfvallararkítekt við góðan orðstír, en hann hannaði m.a Le Meridien Penína golfvöllinn frábæra í Portúgal.

Sir Henry Cotton var mikið fyrir hið ljúfa líf. Kampavín, kavíar og klæðskerasaumuð föt frá helstu tískumógúlum hans tíma voru hluti lífstíls hans. Hann bjó um tíma í 5 stjörnu lúxus-svítu á hóteli áður en hann keypti sér glæsihýsi með fullri þjónustu. Hann ferðaðist um allt á Rolls Royce… og spilaði golf.

Sir Henry Cotton var tekinn í frægðarhöll kylfinga 1980 og sleginn til riddara árið 1988, ári eftir dauðadag sinn, en hann var áður búinn að veita samþykki sitt til þessa.

Hinn afmæliskylfingur dagsins er Vilhjálmur Einar Einarsson. Vilhjálmur er fæddur 26. janúar 1977 og á því 40 ára stórafmæli í dag. Hann er í Golfklúbbnum á Höfn í Hornafirði. Komast má á facebook síðu Vilhjálms til þess að óska honum til hamingju með afmælið hér að neðan

1-a-vilhjalmur

Vilhjálmur Einar Einarsson – Innilega til hamingju með 40 ára stórafmælið!!!

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru m.a.: Una Sveinsdóttir (57 ára); Bjarni Benediktsson, 26. janúar 1970 (47 ára);  Paul Sheehan, 26. janúar 1977 (40 ára STÓRAFMÆLI!!!); Karine Icher, 26. janúar 1979 (38 ára); Guido Van Der Valk, 26. janúar 1980 (37 ára); Simth Lee (33 ára)

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öllum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband viðgolf1@golf1.is