Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 1. 2022 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Sigurþór Heimisson og Gary Player – 1. nóvember 2022

Afmæliskylfingar dagsins eru tveir: Sigurþór Heimisson  (Sóri) og ein af golfgoðsögnunum 3, Gary Player.

Sigurþór Heimisson er fæddur 1. nóvember 1962 og á því 60 ára merkisafmæli í dag. Innilega til hamingju með merkisafmælið Sóri!!!

Gary Player fæddist 1. nóvember 1935 í Jóhannesarborg í Suður-Afríku og er því 87 ára afmæli í dag. Gary sigraði 9 sinnum í risamótum á ferli sínum sem atvinnumaður í golfi: Masters: 1961, 1974, 1978 Opna bandaríska: 1965 Opna breska: 1959, 1968, 1974 PGA Championship: 1962, 1972.

pastedGraphic.png

Gary Player eftir einn af risamótssigrum sínum

Þessir 9 sigrar ásamt 9 sigrum hans á risamótum Champions Tour gera það að verkum að hann er álitinn einn af yfirburðakylfingum í sögu golfsins. Gary Player var tekinn í frægðarhöll kylfinga (World Golf Hall of Fame) árið 1974. Gary hefir sigrað í 165 mótum í 6 heimsálfum á 6 áratuga ferli sínum sem kylfingur.

Á ævi sinni á hann að baki 15 milljóna mílu ferðalög, líklega meira en nokkur annar íþróttamaður. Þessi stuttvaxni 1,70 m Suður-Afríkubúi, var á undan samtíð sinni í því að hann kom auga á mikilvægi þess að stunda líkamsrækt og nýta hvern einasta þráð þess líkama, sem Guð gaf honum (sjá myndskeið hér að neðan, þar sem golfsveifla þessa mikla meistara er skoðuð og golfsveilfuþjálfaragúrúar á borð við Butch Harmon tjá sig um hana).

Vegna líkamsræktaráráttu sinnar (sem í dag er sjálfsagður liður í prógrammi atvinnukylfinga) var Gary oft uppnefndur Mr. Fitness, en önnur viðurnefni sem hann fékk á löngum ferli voru „svarti riddarinn“ (ens.: Black Knight) og svo síðar vegna mikilla ferðalaga sinna „alþjóðlegi sendiherra golfsins“ (ens.: the International Ambassador of Golf).

Gary er viðurkenndur golfvallararkítekt og liggja eftir hann 300 golfvellir í heiminum, sem lagðir hafa verið eftir hugmyndum hans og hönnun. Eftir Gary Player hafa m.a. sportbarir og golfmót verið nefnd.

Viðskiptaveldi Gary Player heitir Black Knight International, en það hefir yfirumsjón með fyrirtækjum kappans: GaryPlayer Design, Player Real Estate, og Black Knight Enterprises, en fyrirtækin hafa m.a. á könnu sinni að veita leyfi, sjá um samkomur og uppákomur, fjölmiðla, vín, golfútbúnað og alls kyns minjagripi tengdum Gary Player.

pastedGraphic_1.png

Elvis Presley í golfkennslu hjá Gary Player

Gary Player hefir fengist við hrossarækt á: The Gary Player Stud Farm, en bú hans hefir hlotið alþjóðlega viðurkenningu fyrir framúrskarandi rækt á veðhlaupahestum, en einn frægasti hestur Gary er sá sem þátt tók í Epsom Derby, árið 1994, og hét „Broadway Flyer“.

En Gary Player, sem fékk svo mikið í lífi sínu, gefur líka tilbaka til samfélagsins. Þannig rekur hann „The Player Foundation“ en meginmarkmið stofnunarinnar er að stuðla að menntun fátækra barna í heiminum.

Árið 1983 setti The Player Foundation á laggirnar Blair Atholl Schools í fæðingarbæ Garys, Jóhannesarborg í Suður-Afríku, en það er skólabygging sem hýsir meira en 500 börn allt frá dagheimilisaldri til 8. bekkjar.

Árið 2008 var haldið upp á 25 ára afmæli skólans með góðgerðargolfmótum í London, Palm Beach, Shanghai og Cape Town og söfnuðust yfir $30 milljónir, sem allt rann til reksturs skólans.

Nánar um æsku og fjölskyldu Gary Player Eins og fyrr sagði fæddist Gary Player í Jóhannesarborg í Suður-Afríku, 1935, fyrir nákvæmlega 76 árum.

Hann var yngstur 3 barna Harry og Muriel Player. Gary var bara 8 ára gamall þegar móðir hans lést úr krabbameini. Faðir hans var oft fjarverandi vegna vinnu sinnar í gullnámu, fjölskyldan var ekki efnuð, en engu að síður tók Harry, faðir Gary lán til þess að geta keypt kylfur handa syni sínum, þannig að Gary litli hefði eitthvað að gera meðan hann væri í burtu.

Það var á Virginia Park golfvellinum í Jóhannesarborg sem ástarævintýri Gary og golfsins byrjaði. Hann spilaði fyrsta golfhring sinn 14 ára og paraði fyrstu 3 holurnar. Tveimur árum síðar, aðeins 16 ára tilkynnti Gary að hann ætlaði sér að verða kylfingur nr. 1 í heiminum. Aðeins 17 ára gamall gerðist hann atvinnumaður í golfi.

Gary Player kvæntist konu sinni Vivienne Verwey (sem er systir atvinnumannsins Bobby Verwey) 19. janúar 1957, 5 árum eftir að hann gerðist atvinnumaður í golfi (sjá brúðkaupsmyndina af þeim hér að neðan).

pastedGraphic_2.png

Playerhjónin Gary og Vivienne

Saman eiga þau 6 börn: Jennifer, Marc, Wayne, Michele, Theresu og Amöndu. Gary er líka orðinn 22 faldur afi og á 2 barnabarnabörn. Á upphafsdögum ferils síns vakti Gary mikla athygli hvar sem hann kom, þar sem hann ferðaðist milli móta með eiginkonu, 6 börn, barnapíur og barnakennara í eftirdragi. Hann var frægur fyrir að vilja ekki ferðast nema fjölskyldan fylgdi.

Um samband sitt við eiginkonuna sagði Gary nýlega: „Þetta var ást við fyrstu sýn og ég elska konu mína meira í dag en ég hef nokkru sinni gert. Og ég met það sem hún hefir gefið mér sem eiginkona. Hún er dásamleg amma líka. Ég gæti aldrei hafa náð þeim árangri sem ég náði án þessarar góðu konu.

Árið 2013, lét Player ekki við það sitja að dásama eiginkonu sína heldur lagði yngri kylfingum lífsreglurnar í því efni, sagði m.a. Rory McIlroy að hann yrði að eignast konu sem hann til þess að hann nái árangri á golfvellinum, því atvinnukylfingar geti hvorki haft áhyggjur af konum sínum né umboðsmönnum, en Rory virtist á þeim tíma hafa áhyggjur af hvoru tveggja.