Sigurpáll Geir Sveinsson, GM, er að mati Helga besti golfkennari á Íslandi. Mynd: Golf 1 Afmæliskylfingur dagsins: Sigurpáll Geir Sveinsson – 12. júní 2020
Afmæliskylfingur dagsins er Sigurpáll Geir Sveinsson. Sigurpáll Geir er fæddur 12. júní 1975 og á því 45 ára afmæli í dag. Sigurpáll er þekktastur í dag, fyrir að vera golfkennari, sá um afreksstarf hjá GK og GM og nú síðast (2017) var Siggi Palli eins og margir þekkja hann, ráðinn íþróttastjóri Golfklúbbs Suðurnesja (GS). Eins hefir hann starfað hjá GÞH á Hellishólum í Fljótshlíð.
Sigurpáll byrjaði í golfi fyrir u.þ.b. 30 árum, árið 1989, þá 14 ára. Hann var í íslenska landsliðinu í golfi á árunum 1992-2003, en á þeim árum var hann í Golfklúbbi Akureyrar. Sigurpáll varð m.a. þrívegis Íslandsmeistari karla (1994, 1998 og 2002) og þrisvar sinnum í sveitakeppni. Árið 2003 gerðist Sigurpáll atvinnumaður.
Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan:

Sigurpáll Sveinsson (45 ára afmæli – Innilega til hamingju með afmælið!!!)
Aðrir frægir kylfingar sem afmæli eiga í dag eru Mark Calcavecchia, 12. júní 1960 (60 ára MERKIS- AFMÆLI); Thuridur Osk Valtysdottir, 12. júní 1963; (57 ára); Þórhildur Lilja Ólafsdóttir, 12. júní 1967 (53 ára); Rósant Birgisson 12. júní 1971 (49 ára); Matthew Nixon, 12. júní 1989 (31 árs); Lars Van Meijel, 12. júní 1994 (26 ára); Sindri Snær Kristófersson, GKG, 12. júní 2003 (17 ára) og Birna Ágústsdóttir, GK, …. og ….
Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!
Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
