Sigurpáll Geir Sveinsson, GM, er að mati Helga besti golfkennari á Íslandi. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 12. 2016 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Sigurpáll Geir Sveinsson – 12. júní 2016

Afmæliskylfingur dagsins er Sigurpáll Geir Sveinsson. Sigurpáll Geir er fæddur 12. júní 1975 og á því 41 árs afmæli í dag. Sigurpáll er þekktastur í dag, fyrir að vera golfkennari, sem m.a. sér um allt afreksstarfhjá Golfklúbbi Mosfellsbæjar.

Sigurpáll byrjaði í golfi árið 1989, þá 14 ára. Hann var í íslenska landsliðinu í golfi á árunum 1992-2003, en á þeim árum var hann í Golfklúbbi Akureyrar. Sigurpáll varð m.a. þrívegis Íslandsmeistari karla (1994, 1998 og 2002) og þrisvar sinnum í sveitakeppni. Árið 2003 gerðist Sigurpáll atvinnumaður.

Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan:

Sigurpáll Geir Sveinsson, GM. Mynd: Í einkaeigu
Sigurpáll Sveinsson (41 árs afmæli – Innilega til hamingju með afmælið!!!)

Aðrir frægir kylfingar sem afmæli eiga í dag eru Mark Calcavecchia, 12. júní 1960 (56 ára); Thuridur Osk Valtysdottir, 12. júní 1963; (53 ára); Þórhildur Lilja Ólafsdóttir, 12. júní 1967 (49 ára); Rósant Birgisson 12. júní 1971 (45 ára); Matthew Nixon, 12. júní 1989 (27 ára); Sindri Snær Kristófersson, GKG, 12. júní 2003 (13 ára) og Birna Ágústsdóttir.

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is