Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 5. 2017 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Sigurður Hafsteinsson – 5. júlí 2017

Afmæliskylfingur dagsins er Sigurður Hafsteinsson. Sigurður er fæddur 5. júlí 1956 og því 61 árs. Hann er í Golfklúbbi Reykjavíkur, vinsæll golfkennari og mörgum Spánarfaranum að góðu kunnur, en þeir eru ófáir kylfingarnir, sem hann hefir leiðbeint í gegnum tíðina. Sigurður er kvæntur Helgu Möller.

Komast má á facebook síðu Sigurðar til þess að óska honum til hamingju með afmælið hér að neðan

Sigurður Hafsteinsson, GR.

Sigurður Hafsteinsson, GR.

Sigurður Hafsteinsson (61 árs – Innilega til hamingju með afmælið!!!)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Guðjón D Gunnarsson, 5. júlí 1943 (74 ára); Jeff Hall, 5. júlí 1957 (60 ára STÓRAFMÆLI!!!); Sólveig Ósk Hallgrímsdóttir/Mensý, 5. júlí 1964 (53 ára); Valdís Guðbjörnsdóttir 5. júlí 1967 (50 ára STÓRAFMÆLI!!!); Markus Brier, 5. júlí 1968 (49 ára), Íris Björg Þorvarðardóttir, 5. júlí 1974 (43 ára); Snorri Páll Ólafsson, 5. júlí 1989 (28 ára); Agnar Daði Kristjánsson, 5. júlí 1999 (18 ára).

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is