Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 5. 2015 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Sigurður Hafsteinsson – 5. júlí 2015

Afmæliskylfingur dagsins er Sigurður Hafsteinsson. Sigurður er fæddur 5. júlí 1956 og því 59 ára. Hann er í Golfklúbbi Reykjavíkur, vinsæll golfkennari og mörgum Spánarfaranum að góðu kunnur, en þeir eru ófáir kylfingarnir, sem hann hefir leiðbeint í gegnum tíðina. Sigurður er kvæntur Helgu Möller.

Komast má á facebook síðu Sigurðar til þess að óska honum til hamingju með afmælið hér að neðan

Sigurður Hafsteinsson (59 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Guðjón D Gunnarsson, 5. júlí 1943 (72 ára); Jeff Hall, 5. júlí 1957 (58 ára); Sólveig Ósk Hallgrímsdóttir/Mensý, 5. júlí 1964 (51 árs); Valdís Guðbjörnsdóttir  5. júlí 1967 (48 ára); Markus Brier, 5. júlí 1968 (47 ára), Íris Björg Þorvarðardóttir, 5. júlí 1974 (41 árs); Snorri Páll Ólafsson, 5. júlí 1989 (26 ára); Agnar Daði Kristjánsson, 5. júlí 1999 (16 ára).

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is