Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 26. 2023 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Sigurður Arnar Garðarsson – 26. febrúar 2023

Það er Sigurður Arnar Garðarsson, GKG sem er afmæliskylfingur dagsins. Sigurður Arnar er fæddur 26. febrúar 2002 og á því 21 árs stórafmæli í dag! Sigurður Arnar byrjaði að spila golf 2 ára gamall og má sjá skemmtilegt viðtal, sem blaðamaður Mbl. tók við afmæliskylfinginn fyrir 14 árum SMELLIÐ HÉR

Sigurður Arnar kom sér niður í 13,5 í forgjöf aðeins 10 ára!!! Sumarið 2012 (10 ára) varð hann m.a. klúbbmeistari GKG í aldursflokknum 12 ára og yngri.

Mynd tekin af Sigurði Arnari í 8. febrúar 2012 á móti í Sandgerði. Mynd: Golf 1

Sumarið 2012 tók Sigurður Arnar þátt í Unglingamótaröð Arion banka og spilaði þar í strákaflokki (14 ára og yngri) gegn strákum sem voru oft á tíðum 4 árum eldri en hann. Engu að síður gekk Sigurði Arnari bara vel t.a.m. varð hann í 11. sæti af 35 þátttakendum á 3. móti Unglingamótaraðarinnar, sem fram fór 15. og 16. júní 2012 á Korpunni.

Árið 2011 (9 ára) tók Sigurður Arnar einnig þátt í nokkrum opnum mótum og er t.d. mjög eftirminnileg frammistaða hans á Bylgjan Open, sem var tveggja daga mót á Leirdalsvelli, heimavelli Sigurðar Arnars, með niðurskurð eftir fyrri daginn. Þátttakendur voru 198 og Sigurður Arnar gerði sér lítið fyrir og varð í 2. sæti á mótinu með 73 punkta, 38 fyrri daginn og 35 seinni.

Sumarið 2013, lék Sigurður Arnar á Íslandsbankamótaröðinni í strákaflokki 14 ára og yngri, aðeins 11 ára. Engu að síður varð hann í 4. sæti á stigalista GSÍ í strákaflokki, sem er stórglæsilegur árangur!!!

Í febrúar 2014 varð Sigurður Arnar efstur í flokki 12 ára og yngri stráka á 2. púttmótinu í púttmótaröð barna og unglinga í GKG, en Sigurður Arnar er slyngur púttari.

Hápunktur Sigurðar Arnars í golfinu á árinu 2014 er þó líklega að hann varð Íslandsmeistari í holukeppni í strákaflokki 14 ára og yngri.

Árið 2015 bætti hann um betur en þá varð hann bæði Íslandsmeistari í höggleik og holukeppni. Árið 2016 endurtók hann leikinn; varð báði Íslandsmeistari í höggleik og holukeppni í sínum aldursflokki, auk þess sem hann sigraði í 5 af 6 mótum Íslandsbankamótaraðarinnar, sem varð til þess að hann varð stigameistari og var auk þess valinn efnilegasti karlkylfingurinn 2016!

Árið 2017 tók Sigurður Arnar m.a. þátt í EM golfklúbba í Frakklandi (með sveit GKG); hann sigraði í flokki 15-16 ára á móti German Junior Golf og spilaði á bæði Íslandsbanka- og Eimskipsmótaröðunum. Á Íslandsbankamótaröðinni sigraði hann m.a. á 6. mótinu, varð í 5. sæti á 5. mótinu og í 2. sæti á 1., 2. og 4. mótinu (sem var Íslandsmótið í höggleik) – Þetta ár 2017tók Sigurður Arnar ekki þátt í úrslitum í holukeppni í drengjaflokki (3. mótinu). Síðla árs (í október) tók Sigurður Arnar þátt í móti á German Junior Golf mótaröðinni og sigraði í flokki 15-16 ára.

Í lok árs 2018 sigraði Sigurður Arnar m.a. í FGC Florida Championship.

Árið 2019, varð Sigurður Arnar m.a. Íslandsmeistari í höggleik í flokki 17-18 ára á Íslandsbankamótaröð unglinga. Eins sigraði hann á 2. stigamóti Íslandsbankamótaraðarinnar 2019.

Í hittifyrra 2021 varð Sigurður Arnar m.a. klúbbmeistari GKG (Sjá mynd hér að neðan)

Sigurður Arnar á ekki langt að sækja golfgenin, en foreldrar hans eru Garðar Ólafsson og Ragnheiður Sigurðardóttir og eru bæði miklir kylfingar. Ragnheiður, GKG, móðir Sigurðar Arnar hefir m.a. spilað á Eimskipsmótaröðinni og í móti 35+. Eins er bróðir hans, Ragnar Már snjall kylfingur og m.a. sigurvegari Duke of York 2012.

Komast má á facebook síðu Sigurðar Arnars til þess að óska honum til hamingju með afmælið hér að neðan

Sigurður Arnar og Anna Júlía klúbbmeistarar GKG 2021

Sigurður Arnar Garðarsson 21 árs – Innilega til hamingju með daginn!!!

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: James Russell Ahern 26. febrúar 1949 (74 ára); Leszek Wolynski(54 ára); Katherine Hull, 26. febrúar 1982 (41 árs); Anna Scott 26. febrúar 1986 (37 ára); Alison Lee, 26. febrúar 1996 (27 ára); Hrafn Gk (39 ára) …. og …..

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum innilega til hamingju með 16 ára afmælið og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag til hamingju með daginn!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is

Í aðalmyndaglugga: Sigurður Arnar á Íslandsmóti Íslandsbankamótaraðarinnar í holukeppni 2019. Mynd: GSÍ