
Afmæliskylfingur dagsins: Sigrún Margrét Ragnarsdóttir – 22. júlí 2022
Afmæliskylfingur dagsins er Sigrún Margrét Ragnarsdóttir. Sigrún Margrét er fædd 22. júlí 1942 og á því 80 ára merkisafmæli í dag. Sigrún Margrét er í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði. Hún varð m.a. Íslandsmeistari 65+ í kvennaflokki 2016 og 2013 og 5 ár þar á undan í höggleik án forgjafar og með forgjöf í 4 skipti. Hún varð í 2. sæti á Íslandsmóti 65+ 2017. Árið 2019 varð Sigrún Margrét síðan T-6 á meistaramóti Keilis í flokki kvenna 75+. Þess mætti geta að Sigrún er ekki aðeins ein af Golfdrottningum Keilis heldur einnig fegurðardrottning Íslands 1960. Hún er frábær í golfi, gullfalleg og er þar að auki bæði skemmtileg og góð! Eðalkona og- kylfingur!!!
Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju hér að neðan:

Sigrún Margrét Ragnarsdóttir
Sigrún Margrét Ragnarsdóttir 80 ára – Innilega til hamingju með merkisafmælið!!!
Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Susie Berning, 22. júlí 1941 (81 árs); Valur Valdimarsson, 22. júlí 1950 (72 ára); Carl Suneson, 22. júlí 1967 (55 ára); Rassar Í Sveit, 22. júlí 1967 (55 ára); Kristofer Helgason 22. júlí 1970 (52 ára); Kríla-peysur Fríðudóttir, 22. júlí 1973 (49 ára); Brendon Todd, 22. júlí 1985 (37 ára); Þór Einarsson, 22. júlí 2000 (22 ára)…… og …..
Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!
Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is
- ágúst. 13. 2023 | 21:00 Íslandsmótið 2023: Logi hlaut Björgvinsskálina!
- ágúst. 13. 2023 | 19:30 Íslandsmótið 2023: Ragnhildur og Logi Íslandsmeistarar!!!
- ágúst. 12. 2023 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (32/2023)
- ágúst. 7. 2023 | 23:00 Birgir Björn sigurvegari Einvígisins á Nesinu 2023
- ágúst. 1. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Guðlaugur Gíslason og Guðmundur Liljar Pálsson – 1. ágúst 2023
- ágúst. 1. 2023 | 08:18 Ryder Cup 2023: Stewart Cink 5. varafyrirliði liðs Bandaríkjanna
- júlí. 31. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Kolbrún Rut Evudóttir – 31. júlí 2023
- júlí. 31. 2023 | 12:00 European Young Masters: Markús Marelsson varð í 2. sæti!!! – Glæsilegur!!!
- júlí. 30. 2023 | 23:59 PGA: Lee Hodges sigurvegari 3M Open
- júlí. 30. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Bergsteinn Hjörleifsson – 30. júlí 2023
- júlí. 29. 2023 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (30/2023)
- júlí. 29. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Signý Marta Böðvarsdóttir – 29. júlí 2023
- júlí. 28. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Hinrik Gunnar Hilmarsson og Þórdís Lilja Árnadóttir – 28. júlí 2023
- júlí. 27. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Jordan Spieth – 27. júlí 2023
- júlí. 26. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Mick Jagger, Allen Doyle, Sigríður Rósa Bjarnadóttir og Daniel Hillier – 26. júlí 2023