Signý Marta Böðvarsdóttir , GR.
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 29. 2015 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Signý Marta Böðvarsdóttir – 29. júlí 2015

Afmæliskylfingur dagsins er Signý Marta Böðvarsdóttir. Signý Marta er fædd 29. júlí 1970 og er því 45 ára í dag. Hún er í Golfklúbbi Reykjavíkur.

Signý Marta er góður kylfingur og hefir m.a. staðið sig vel í púttmótaröðum GR-kvenna. Hún er kvænt Páli Gunnari Pálssyni og er móðir verðandi stórkylfings Böðvars Pálssonar.

Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska henni til hamingju með afmælið hér að neðan:

Signý Marta Böðvarsdóttir · 45 ára (Innilega til hamingju með afmælið!!!)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Max Faulkner f. 29. júlí 1916 – d. 26. febrúar 2005; Friðrik Sigurðsson, GS, 29. júlí 1969 (46 ára); Harrison Frazar, 29. júlí 1971 (44 ára); Ísabelle Lendl, 29. júlí 1991 (24 ára)

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is