Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 9. 2015 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Sergio Garcia ——- 9. janúar 2015

Það er spænski kylfingurinn Sergio Garcia Fernándezsem er afmæliskylfingur dagsins. Sergio er fæddur í Borriol, á Castellón, á Spáni,  9. janúar 1980 og á því 35 ára afmæli í dag.

Hann var í fréttum fyrir 2 árum síðan 2013,  þegar hann lét Tiger fara í taugarnar á sér og lét falla nokkur vel valin orð um kjúklingaætuna, orð sem túlkuð voru sem kynþáttaníð.

Öllu skemmtilegri var fréttin um Garcia þegar hann sigraði á Thaíland Golf Open með kærustu sína, austurrísku leikkonuna Katharinu Boehm á pokanum fyrir ári síðai. Sjá með því að SMELLA HÉR: 

Fyrir u.þ.b. ári síðan voru fréttir að Sergio spilaði gjarnan knattspyrnu með heimalisti sínu í Borriol, lið sem hann styrkir mjög fjárhagslega. Sjá með því að SMELLA HÉR: 

Sergio Garcia gerðist atvinnumaður í golfi fyrir 16 árum síðan, 1999. Síðan þá hefir hann sigrað í 27 mótum víðsvegar í heiminum, þ.á.m. 8 sinnum á PGA Tour og 11 sinnum á Evrópumótaröðinni.   Í janúar á s.l. ári, 2014  vann Garcia í  Commercial Bank Qatar Masters þegar hann vann Mikko Ilonen frá Finnlandi í bráðabana. Eins stóð Garcia sig vel í Opna breska risamótinu 2014, varð T-2 þ.e. deildi 2. sætinu með öðrum 2 höggum á eftir sigurvegaranum Rory McIlroy.  Með þessum glæsiárangri komst Garcia aftur á topp-10 á heimslistanum og er sem stendur nr.

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Alejandro Cañizares, 9. janúar 1983 (32 árs);  Tiffany Tavee, 9. janúar 1985 (30 ára stórafmæli!!!)  ….. og ……

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is