Sandra Gal Afmæliskylfingur dagsins: Sandra Gal ———— 9. maí 2018
Það er W-7 módelið fyrrverandi Sandra Gal, sem er afmæliskylfingur dagsins. Sandra er fædd 9. maí 1985 og á því 32 ára afmæli í dag! Foreldrar Söndru heita Jan og Alexandra Gal og er hún einkabarn þeirra. Sandra er mjög listhneigð og fæst við að mála myndir í frítíma sínum. Hún var við nám í University of Florida 2005-2007 og spilaði í bandaríska háskólagolfinu með skólaliðinu The Florida Gators.

Kylfingurinn Sandra Gal
Sandra hefir 1 sinni sigrað á LPGA og finnst mörgum orðið tímabært að hún bæti öðrum sigri við, en hún hefir verið að standa sig mjög vel á mótum á 2015- 2018 tímabilunum og var m.a. í Solheim Cup liði Evrópu árið 2015.
Eini sigur Söndru Gal á LPGA kom 27. mars 2011 á Kia Classic.Sandra Gal
Það sem er skemmtilegt er að Söndru og Ólafíu Þórunni „okkar“ Kristinsdóttur, virðist vera vel til vina en Sandra hefir m.a. komið til Íslands.

Vinkonurnar Ólafía Þórunn Kristinsdóttir og Sandra Gal – fremstu kylfingar Íslands annars vegar og Þýskalands hins vegar – Þær kunna líka að skemmta sér
Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:
Harry Vardon, (f. 9. maí 1870 – d. 20. mars 1937); Betty Jameson, (9. maí 1919 – 7. febrúar 2009) (Hún var einn af stofnendum LPGA); Sam Adams 9. maí 1946 (72 ára); John Mahaffey 9. maí 1948 (70 ára STÓRAFMÆLI!!!); Ásta Jóna Skúladóttir, GK, 9. maí 1959 (59 ára); Guðmundur Ármann Pétursson 9. maí 1970 (48 ára) Ingibjörg Sunna Friðriksdóttir, 9. maí 1972 (46 ára; ); Paul Maddy, 9. maí 1981 (37 ára); Tvisturinn Vestmannaeyjum, 9. maí 1988 (30 ára STÓRAFMÆLI!!!); Arnór Ingi Finnbjörnsson, GR, 9. maí 1989 (29 ára); Andri Jón Sigurbjörnsson, 9. maí 1989 (29 ára)
Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!
Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
