Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 24. 2015 | 17:00

Afmæliskylfingur dagsins: Sam Torrance —- 24. ágúst 2015

Afmæliskylfingur dagsins er Sam Torrance, OBE. Torrance er fæddur í Largs, Skotlandi 24. ágúst 1953 og á því 62 ára afmæli í dag!!! Torrance gerðist atvinnumaður í golfi 16 ára og hefir á ferli sínum sigrað 43 sinnum þar af í 21 skipti á Evrópumótaröðinni (og er í 10. sæti yfir þá sem sigrað hafa oftast á þeirri mótaröð). Seinni ár hefir Torrance spilað á European Seniors Tour þ.e. öldungamótaröðinni og þar hefir hann sigrað 11 sinnum. Besti árangur Torrance í risamóti er 5. sæti á Opna breska árið 1981.

Torrance er kvæntur Suzanne Danielle (frá árinu 1988), en Suzanne er ensk leikkona (ekki mjög þekkt hér á landi). Torrance á 3 börn: Daniel, Phoebe og Anousku.

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Bergljót Davíðsdóttir, 24. ágúst 1953 (62 árs); Hrafnhildur Sigurðardóttir, 24. ágúst 1957 (58 ára); Svandís Svavarsdóttir 24. ágúst 1964 (51 árs); Gísli Tryggvason, 24. ágúst 1969 (46 ára); Jesús Armando Amaya Contreras, 24. ágúst 1969 (46 ára); Andrew Marshall, 24. ágúst 1973 (42 ára); Björn Steinar Brynjólfsson, 24. ágúst 1982 (33 ára); Viktor Páll Magnússon, 24. ágúst 1999 (16 ára)  …. og …..  Ira Vekva

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is