Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 27. 2023 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Sam Snead ———- 27. maí 2023

Afmæliskylfingur dagsins er einn besti kylfingur allra tíma …. Sam Snead. Sam fæddist 27. maí 1912 og hefði því orðið 111 ára í dag. Hann dó 23. maí 2002 þ.e. fyrir rúmu 21 ári. Sam Snead vann 82 mót á PGA Tour þ.á.m. risamót 7 sinnum. Hins vegar tókst honum aldrei að sigra á Opna bandaríska þó hann hafi landað 2. sætinu 4 sinnum. Á sínum tíma var Snead uppnefndur „Slammin Sammy“ vegna mikillar högglengdar sinnar. Snead er höfundar margra gullperlna í orðatiltækjum, er tengdust golfi t.a.m. „Hafðu tölu á krónum og aurum, haltu þér frá whiskey og gefðu aldrei pútt.“ Hann var vígður í frægðarhöll kylfinga 1974. Loks hlaut Sam Snead PGA Tour Lifetime Achievement Award árið 1998.

Aðrir frægir kylfingar, sem eiga afmæli í dag eru: Alda Steinunn Ólafsdóttir, 27. maí 1944 (79 ára);Vaughan Somers, 27. maí 1951 (72 ára); Snorri Ísleifsson, 27. maí 1990 (33 ára); Guðjón Heiðar Ólafsson, GK, 27. maí 1997 (26 árs) … og …

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is