Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 5. 2015 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Rún Pétursdóttir —- 5. febrúar 2015

Afmæliskylfingur dagsins er Rún Pétursdóttir, GR.  Rún er fædd. 5. febrúar 1995 og á því 20 ára stórafmæli í dag.  Rún spilaði á Unglingamótaröðunum undanfarin sumur 2011 og 2012. Rún  er  m.a. Íslandsmeistari í höggleik 2011, í  flokki 15-16 ára. Eins var Rún var í kvennasveit GR sem varð Íslandsmeistari í sveitakeppni GSÍ 2011 og tók í kjölfarið þátt í European Ladies Club Trophy, sem fram fór á eyjunni Corfu á Grikklandi, haustið 2011.

Sumarið 2012  sigraði Rún m.a. í flokki 17-18 ára í 2. móti Arion bankamótaraðarinnar á Þverárvelli.

S.l. sumar var Rún m.a. kaddý vinkonu sinnar Írisar Kötlu Guðmundsdóttur GR, á Íslandsmótinu í höggleik, 25. júlí 2014 á Leirdalsvelli, en svo skemmtilega vill til að þær vinkonur eiga afmæli með 5 daga millibili; Rún 5. febrúar og Íris Katla 10. febrúar:

Íris Katla og Rún á Íslandsmótinu í höggleik 25. júlí 2014 á Leirdalsvelli hjá GKG. Mynd: Golf 1

Íris Katla og Rún á Íslandsmótinu í höggleik 25. júlí 2014 á Leirdalsvelli hjá GKG. Mynd: Golf 1

Komast má á facebook síðu Rúnar til þess að óska henni til hamingju með afmælið  hér að neðan:

Rún Pétursdóttir  (Innilega til hamingju með stórafmælið!!!)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Jane Geddes, 5. febrúar 1960 (55 ára);  José Maria Olázabal 5. febrúar 1966 (49 ára),  Kevin Stadler, 5. febrúar 1980 (35 ára) ….. og …..

 
Jökull Þh (51 árs)

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum, sem afmæli eiga innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is