Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 5. 2014 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Rún Pétursdóttir —- 5. febrúar 2014

Afmæliskylfingur dagsins er Rún Pétursdóttir, GR.  Rún er fædd. 5. febrúar 1995 og er því 19 ára í dag.  Rún spilaði á Unglingamótaröðunum undanfarin sumur   2011 og 2012. Rún  er  m.a. Íslandsmeistari í höggleik 2011, í  flokki 15-16 ára. Eins var Rún var í kvennasveit GR sem varð Íslandsmeistari í sveitakeppni GSÍ 2011 og tók í kjölfarið þátt í European Ladies Club Trophy, sem fram fór á eyjunni Corfu á Grikklandi, haustið 2011.

Sumarið 2012  sigraði Rún m.a. í flokki 17-18 ára í 2. móti Arion bankamótaraðarinnar á Þverárvelli.

Komast má á facebook síðu Rúnar til þess að óska henni til hamingju með afmælið  hér að neðan:

Rún Pétursdóttir  (Innilega til hamingju með afmælið!!!)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Jane Geddes, 5. febrúar 1960 (54 ára);  José Maria Olázabal 5. febrúar 1966 (48 ára),  Kevin Stadler, 5. febrúar 1980 (34 ára) ….. og …..

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum, sem afmæli eiga innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is