Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 4. 2014 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Rory McIlroy ——— 4. maí 2014

Afmæliskylfingur dagsins er nr. 11 á Rolex-heimslistanum, norður-írski kylfingurinn Rory McIlroy. Hann er fæddur 4. maí 1989 og á því 25 ára stórafmæli í dag.  Rory er trúlofaður tennisdrottningunni Caroline Wozniacki, en þau trúlofuðust nýársdag 2014 og munu giftast í New York í haust. Sjá grein Golf 1 um það með því að  SMELLA HÉR: 

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:   Charles Ross „Sandy“ Somerville, f. 4. maí 1903 – d. 17. maí 1991;  Betsy Rawls, 4. maí 1928 (86 ára);   Jyoti Randhawa, 4. maí 1972 (42 ára – Indverskur); Örvar Samúelsson,  (GA) 4. maí 1991 (23 ára)  ….. og ……

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is