Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 11. 2014 | 15:30

Afmæliskylfingur dagsins: Rögnvaldur Magnússon – 11. ágúst 2014

Afmæliskylfingur dagsins er Rögnvaldur Magnússon. Rögnvaldur er fæddur 11. ágúst 1984 og á því 30 ára stórafmæli í dag!!! Hann var í Golfklúbbi Bolungarvíkur (GBO), en er nú í næsta bæ við, GO, þar sem hann varð m.a. klúbbmeistari 2013. Rögnvaldi hefir gengið vel á ýmsum opnum mótum, sigraði m.a. Opna Afmælismót GVS á glæsilegum 69 höggum, 5. maí 2012 og tók m.a. þátt í sveitakeppni GSÍ fyrir GO, nú um helgina. Rögnvaldur er útskrifaður  PGA golfkennari.

Rögnvaldur með Elísabetu Líf fyrir nákvæmlega 2 árum!

Rögnvaldur með Elísabetu Líf fyrir nákvæmlega 2 árum!

Rögnvaldur er trúlofaður Birnu Pálsdóttur og á dótturina Elínbetu Líf. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með afmælið hér að neðan:

Rögnvaldur Magnússon (30 ára stórafmæli – Innilega til hamingju með afmælið!!!)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Lori Garbacz, 11. ágúst 1958
(56 ára); Grant Osten Waite,  11. ágúst 1964 (50 ára stórafmæli!!!); Dave Pashko, 11. ágúst 1969 (45 ára)….. og ……

Einar Bragi (49 ára)

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is