Ragnheiður Jónsdóttir | september. 6. 2019 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Ragnhildur Kristinsdóttir – 6. september 2019

Afmæliskylfingur dagsins er Ragnhildur Kristinsdóttir . Hún er fædd 6. september 1997 og á því 22 ára afmæli í dag! Ragnhildur er afrekskylfingur í GR og búin að standa sig hreint frábærlega á mótum nú í ár. Ragnhildur stundar nám í Bandaríkjunum við Eastern Kentucky University og verður að sjálfsögðu með í bandaríska háskólagolfinu!!!

Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins hér að neðan til þess að óska henni til hamingju með afmælið


Ragnhildur Kristinsdóttir GR.

Ragnhildur Kristinsdóttir – 22 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Dow Finsterwald, 6. september 1929 (90 ára MERKISAFMÆLI!!!); Jóhann Smári Jóhannesson, 6. september 1935 (84 ára); Sigríður Margrét Gudmundsdottir (69 ára) Jakob Helgi Richter, GK, 6. september 1951 (68 ára); Jóhannes Bjarki Sigurðsson 6. september 1975 (44 ára); Stephen Gangluff, 6. september 1975 (44 ára) … og …

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is