Phill Hunter, við golfkennslu í MP Academy í Golfklúbbnum Oddi. Mynd: Golf 1 Afmæliskylfingur dagsins: Phill Hunter ———- 2. október 2019
Það er Phill Hunter, golfkennari hjá Golfklúbbnum Oddi (GO) sem er afmæliskylfingur dagsins. Phill er breskur, fæddist 2. október 1964 og á því 55 ára afmæli í dag. Hann er kvæntur og á 1 strák.
Phill hefir yfir 36 ára reynslu af golfkennslu. Á árunum 1983-1986 vann hann við Wath Golf Club og á árunum 1986-1988 við Grange Park Golf Club í Englandi.
Hér á landi var Phill golfkennari hjá GR 1988-1991 og hjá GS 1992-1996, auk þess sem hann þjálfaði unglingalandsliðið á þessum árum.
Phill og fjölskylda bjuggu síðan um 11 ára skeið í Þýskalandi þar sem hann var yfirgolfkennari við Golfclub Haus Kambach í Eschweiler. Þar stofnaði hann H20 Golf Academy.
Eftir heimkomu til Íslands stofnaði Phill MP Academy árið 2010 ásamt Magnúsi Birgissyni, golfkennara, en golfskóli þeirra hafði aðalbækistöðvar hjá Golfklúbbnum Oddi í Garðabæ. Golfkennarar MP Academy voru auk Phill, Magnús Birgisson og Andrea Ásgrímsdóttir, sem nú eru farin til annarra starfa. Phill er hins vegar enn í Oddinum.
Komast má á facebooksíðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með afmælið hér að neðan:

Phill Hunter, við golfkennslu í Golfklúbbnum Oddi. Mynd: Golf 1
Phill Hunter (55 ára afmæli – Innilega til hamingju!!!)
Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: John Neumann Cook, f. 2. október 1957 (62 ára); Pálmi Gestsson, 2. október 1957 (62 ára); Libby Wilson, f. 2. október 1963 (56 ára); Björk Vilhelmsdóttir, 2. október 1963 (56 ára); Margrét María Sigurðardóttir 2. október 1964 (55 ára); Sigridur Helga Völundardottir 2. október 1967 (52 ára); Craig Kanada, f. 2. október 1968 (51 árs); Brent Delahoussaye, f. 2. október 1981 (38 ára); Magnús Lárusson, GM, f. 2. október 1985 (34 ára); Sophia Popov, f. 2. október 1992 (27 ára); Anne Van Dam, 2. október 1995 (24 ára) ….. og …… Ari Ívars …. og ….
Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!
Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
