Phill Hunter, við golfkennslu í MP Academy í Golfklúbbnum Oddi. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 2. 2016 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Phill Hunter ———- 2. október 2016

Það er Phill Hunter, golfkennari í MP Golf Academy hjá Golfklúbbnum Oddi (GO) sem er afmæliskylfingur dagsins. Phill er breskur, fæddist 2. október 1964 og á því 52 ára afmæli í dag. Hann er kvæntur og á 1 strák.

Phill hefir yfir 30 ára reynslu af golfkennslu. Á árunum 1983-1986 vann hann við Wath Golf Club og á árunum 1986-1988 við Grange Park Golf Club í Englandi.

Hér á landi var Phill golfkennari hjá GR 1988-1991 og hjá GS 1992-1996, auk þess sem hann þjálfaði unglingalandsliðið á þessum árum.

Phill og fjölskylda bjuggu síðan um 11 ára skeið í Þýskalandi þar sem hann var yfirgolfkennari við Golfclub Haus Kambach í Eschweiler. Þar stofnaði hann H20 Golf Academy.

Eftir heimkomu til Íslands stofnaði Phill MP Academy árið 2010 ásamt Magnúsi Birgissyni, golfkennara, en golfskóli þeirra hefir aðalbækistöðvar hjá Golfklúbbnum Oddi í Garðabæ. Golfkennarar MP Academy eru auk Phill, Magnús Birgisson og Andrea Ásgrímsdóttir.

Það er um að gera að halda sér í góðu golfformi yfir veturinn og fyrir þá sem vilja panta sér frábæran golftíma þá er sími Phill: 618-1897

Fræðast má nánar um afmæliskylfinginn okkar og MP Academy með því að smella hér: MP ACADEMY

Komast má á facebooksíðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með afmælið hér að neðan:

Phill Hunter, við golfkennslu í MP Academy í Golfklúbbnum Oddi. Mynd: Golf 1

Phill Hunter, við golfkennslu í MP Academy í Golfklúbbnum Oddi. Mynd: Golf 1

Phill Hunter  (52 áraafmæli – Innilega til hamingju!!!)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: John Neumann Cook, f. 2. október 1957 (59 ára); Libby Wilson, f. 2. október 1963 (53 ára); Craig Kanada, f. 2. október 1968 (48 ára); Brent Delahoussaye, f. 2. október 1981 (35 ára); Magnús Lárusson, GKJ, f. 2. október 1985 (31 árs); Sophia Popov, f. 2. október 1992 (24 ára) ….. og ……Margrét María Sigurðardóttir (52 ára); Sigridur Helga Völundardottir (49 ára)

Ari Ívars

Björk Vilhelmsdóttir (53 ára)

Pálmi Gestsson (59 ára)
Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is