
Afmæliskylfingur dagsins: Phil Mickelson og Sigurþór Ingólfsson–—- 16. júní 2020
Það eru þeir Sigurþór Ingólfsson og Phil Mickelson, sem eru afmæliskylfingur dagsins. Báðir eru fæddir 16. júní 1970 og eiga því 50 ára STÓRafmæli í dag!!!
Mickelson fæddist í San Diego í Kaliforníu.
Mickelson er nú nr. 64 á heimslistanum og hefir hann færst niður um 40 sæti frá því á sama tíma fyrir ári.
Mickelson er í 9. sæti yfir þá sem sigrað hafa oftast PGA Tour mót (en Mickelson hefir sigrað í 44 slíkum mótum og nálgast óðfluga þann, sem er í 8. sæti með 45 sigra). Eins hefir Phil sigrað þrívegis á Masters (2004, 2006 og 2010); einu sinni á Opna breska (2013) og einu sinni á PGA Championship (2005). Mickelson er frægur fyrir að hafa 6 sinnum orðið í 2. sæti á Opna bandaríska.
Phil er kvæntur Amy (giftust 1996) og eiga þau saman 3 börn: Amöndu (1999); Sophiu (2001) og Evan (2003).
Sigurþór Ingólfsson er fæddur sama dag og Mickelson og á 50 ára STÓRafmæli í dag. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan
Sigurþór Ingólfsson – Innilega til hamingju með hálfu öldina!!!
Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Old Tom Morris, 16. júní 1821; Dagrún, 16. júní 1964 (56 ára); Harpa Ævarrsdóttir, 16. júní 1967 (53 ára); Michael Kahn, 16. júní 1972 (46 ára); Lily Muni He, 16. júní 1999 (20 ára STÓRAFMÆLI!!!) ….. og ….. Hraunsnef Sveitahotel
Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!
Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is
- janúar. 15. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Sirrý Hallgríms ——- 15. janúar 2021
- janúar. 15. 2021 | 09:00 PGA: 3 efstir & jafnir e. 1. dag Sony Open
- janúar. 15. 2021 | 08:00 Angel Cabrera handtekinn af Interpol í Brasilíu
- janúar. 14. 2021 | 20:49 Svar Kevin Kisners við því hvort hann geti sigrað hvar sem er
- janúar. 14. 2021 | 20:00 PGA: Pebble Beach mótið spilað án áhugamannanna vegna Covid
- janúar. 14. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elín Henriksen og Gunnar Smári Þorsteinsson – 14. janúar 2021
- janúar. 14. 2021 | 10:00 GSÍ: Reglur varðandi framkvæmd æfingar og keppni á Covid tímum
- janúar. 14. 2021 | 08:00 GR: Þórður Rafn nýr íþróttastjóri GR! Haukur Már kemur inn í þjálfarateymið!
- janúar. 14. 2021 | 07:00 LPGA: Yealimi Noh, meðal þeirra sem eru nýliðar aftur 2021!
- janúar. 13. 2021 | 18:00 PGA: Áhorfendum fækkað á Phoenix Open og grímuskylda!
- janúar. 13. 2021 | 16:30 Áskorendamótaröð Evrópu: Mótum í S-Afríku frestað
- janúar. 13. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Guðjón Frímann Þórunnarson – 13. janúar 2020
- janúar. 13. 2021 | 13:00 Evróputúrinn: Boðskortin á Sádí International
- janúar. 13. 2021 | 10:00 Sonur Gary Player hvetur föður sinn til að skila Trump frelsisorðunni
- janúar. 13. 2021 | 08:00 Vegas með Covid