Pétur Magnússon, GK. Mynd: Í einkaeigu
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 24. 2018 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Pétur Magnússon – 24. maí 2018

Afmæliskylfingur dagsins er Pétur Magnússon. Pétur er fæddur 24. maí 1995 og á því 23 ára afmæli í dag. Hann er í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði.

Afrek Péturs eru þrátt fyrir ungan aldur mörg en það sem kemur fyrst í hugann er þegar Pétur var fyrir rúmum 8 árum, nánar tiltekið 2.maí 2010 á æfingahring á Hólmsvelli í Leiru. Hann hafði verið við golfæfingar í Costa Ballena á Spáni mánuðinn þar áður og var að prófa nýja Titleist settið sitt í fyrsta sinn. Pétur sló með 6-járni af 13. teig, löngu par-3 brautinni, sem ekki er sú auðveldasta með vatnið landskunna fyrir framan flötina og bolti hans flaug beint inn á flöt og rúllaði ofan í holu. Hola í höggi!!! Á sama hring fékk Pétur svo þar að auki örn.

Pétur á ekki langt að sækja golfhæfileikanna því hann er sonur Magnúsar Birgissonar, golfkennara og Ingibjargar Guðmundsdóttur, framkvæmdastjóri Hissia.is Pétur á tvo bræður Sindra og Birgi Björn. Komast má á Facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska Pétri til hamingju með daginn hér:

Pétur Magnússon (23 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Walter Zembriski, 24. maí 1935 (83 ára); Frosti Eiðsson, 24. maí 1963 (55 ára); Gaui KRistins, 24. maí 1970 (48 ára); Aslaug Fjola Magnusdottir 24. maí 1971 (47 ára); Bill Haas, 24. maí 1982 (36 ára); Nick Dougherty, 24. maí 1982 (36 ára) og Villý Þór Ólafsson, Mokka Sýningar (60 ára STÓRAFMÆLI!!!), Iceland On Track og Neglur Ez-flow Neglur

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is