Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 24. 2012 | 13:00

Afmæliskylfingur dagsins: Pétur Magnússon – 24. maí 2012

Afmæliskylfingur dagsins er Pétur Magnússon. Pétur er fæddur 24. maí 1995 og því 17 ára í dag. Hann er í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði.

Afrek Péturs eru þrátt fyrir ungan aldur mörg en það sem kemur fyrst í hugann er þegar Pétur var fyrir rúmum 2 árum, nánar tiltekið 2.maí 2010 á æfingahring á Hólmsvelli í Leiru. Hann hafði verið við golfæfingar í Costa Ballena á Spáni mánuðinn þar áður og var að prófa nýja Titleist settið sitt í fyrsta sinn.Pétur sló með 6-járni af 13. teig, löngu par-3 brautinni, sem ekki er sú auðveldasta með vatnið landskunna fyrir framan flötina og bolti hans flaug beint inn á flöt og rúllaði ofan í holu. Hola í höggi!!! Á sama hring fékk Pétur svo þar að auki örn.

Pétur á ekki langt að sækja golfhæfileikanna því hann er sonur Magnúsar Birgissonar, golfkennara í MP Akademíunni í Oddi og Ingibjargar Guðmundsdóttur.  Pétur á tvo bræður Sindra og Birgi Björn.  Komast má á Facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska Pétri til hamingju með daginn hér:

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:   Walter Zembriski, 24. maí 1935 (77 ára);  Bill Haas, 24. maí 1982 (30 ára stórafmæli!!!);  Nick Dougherty, 24. maí 1982 (30 ára stórafmæli!!!)   …… og …….

Frosti Eiðsson (49 ára)

Gaui KRistins (42 ára)

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is