
Afmæliskylfingur dagsins: Ottó Sigurðsson – 15. nóvember 2013
Afmæliskylfingur dagsins er Ottó Sigurðsson. Ottó er fæddur 15. nóvember 1979 og er því 34 ára í dag. Ottó er afrekskylfingur í Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar (GKG). Hann hefir æft golf frá árinu 1993, þ.e. frá 14 ára aldri. Hann var m.a. skráður í PGA á Íslandi og því atvinnumaður í golfi 2007-2009. Hann hefir staðið sig geysivel í fjölmörgum opnum mótum og mætti sem dæmi nefna glæsilegan sigur hans í ZO-ON mótinu 19. júní 2010, þegar hann spilaði Hvaleyrina á -5 undir pari, 66 höggum. Aðeins 3 vikum áður sigraði Ottó höggleikinn á Vormóti Hafnarfjarðar og svo mætti sem dæmi nefna sigur hans á 1. maí móti GHR 2008.
Ottó á fastasæti í karlasveit GKG í sveitakeppnum GSÍ og varð m.a. Íslandsmeistari með sveit GKG 2012.
Hér á árum áður átti Ottó jafnframt fastasæti í golflandsliðinu, enda með betri kylfingum landsins.
Hann spilaði á úrtökumóti í von um að komast á Evrópumótaröðina árið 2007, en hafði því miður ekki árangur sem erfiði.
Eftirminnilegt er þegar Ottó varð Íslandsmeistari í holukeppni 2007, en á úrslitahringnum gerði hann sér lítið fyrir og fór holu í höggi á 13. braut.
Ottó Sigurðsson var valinn íþróttamaður Garðabæjar 2000, en það ár átti hann m.a. 3 vallarmet hérlendis: 67 högg á Jaðarsvelli (GA); 62 högg á Gufudalsvelli (GHG) og 71 högg á gamla vellinum í Leirdalnum (GKG).
Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan:
Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Edward Loar, 15. nóvember 1977 (36 ára); Lorena Ochoa 15. nóvember 1981 (32 ára); Joakim Lagergren, 15. nóvember 1991 (22 ára); ….. og …..

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!
Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is
- júní. 27. 2022 | 06:00 PGA: Schauffele sigurvegari Travelers
- júní. 26. 2022 | 23:30 Evróputúrinn: Haotong Li sigurvegari BMW International Open e. bráðabana v/Pieters
- júní. 26. 2022 | 23:00 KPMG PGA Women’s Championship: In Gee Chun sigraði!!!
- júní. 26. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Benedikt Árni Harðarsson – 26. júní 2022
- júní. 25. 2022 | 22:00 KPMG PGA Women’s Championship: In Gee Chun leiðir f. lokahringinn
- júní. 25. 2022 | 22:00 Evróputúrinn: Li Haotong leiðir f. lokahring BMW International
- júní. 25. 2022 | 21:00 Áskorendamótaröð Evrópu: Andri Þór og Guðmundur Ágúst náðu ekki niðurskurði á Blot Open de Bretagne
- júní. 25. 2022 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (26/2022)
- júní. 25. 2022 | 18:00 NGL: Aron Snær varð T-13 á UNICHEF meistaramótinu
- júní. 25. 2022 | 17:00 LET: Guðrún Brá og Ólafía Þórunn úr leik í Tékklandi
- júní. 25. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Hrafnkell Óskarsson – 25. júní 2022
- júní. 25. 2022 | 07:00 Íslandsmót golfklúbba 2022: GA Íslands- meistari í fl. 16 ára og yngri drengja
- júní. 24. 2022 | 22:00 LET: Guðrún Brá og Ólafía Þórunn báðar með á Czech Ladies Open
- júní. 24. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Kaname Yokoo —-– 24. júní 2022
- júní. 23. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Flory van Donck – 23. júní 2022