Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 18. 2023 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Örn Ævar Hjartarson og Hjalti Árnason – 18. febrúar 2023

Afmæliskylfingar dagsins eru tveir Hjalti Árnason og  Örn Ævar Hjartason.

Hjalti Árnason er fæddur 18. febrúar 1963 og á því 60 ára merkisafmæli í dag. Hann er einn þekktasti kraftlyftingamaður Íslands og fyrrum sterkasti maður heims.

Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins hér að neðan til þess að óska honum til hamingju með merkisafmælið:

Hjalti Árnason – 60 ára – Innilega til hamingju með merkisafmælið!!!

_________

Örn Ævar Hjartason er fæddur 18. febrúar 1978 og á því 45 ára afmæli í dag!!!

Eins og alltaf þegar miklir afrekskylfingar, líkt og Örn Ævar, eiga afmæli er erfitt nema rétt hægt að tæpa á nokkrum helstu afrekum viðkomandi. Þegar minnst er á Örn Ævar er ekki annað hægt en að geta allra vallarmetanna sem hann á, en það frægasta setti hann eflaust 1998 þegar hann spilaði Old Course í sjálfri vöggu golfíþróttarinnar St. Andrews á 60 höggum, sem er vallarmet! Eins á Örn Ævar ýmis vallarmet hér heima t.a.m. -10 undir pari, þ.e. 62 högg í Leirunni, 2009; -7 undir pari 63 högg á gamla Kirkjubólsvelli hjá GSG, 2009; -5 undir pari, þ.e. 66 högg á gamla Hamarsvelli í Borgarnesi, 2006 og þá er bara fátt eitt talið.

Það eru líka fáir sem geta státað af því að hafa sigrað sjálfan Luke Donald í holukeppni, líkt og Örn Ævar.

Af Íslandsmeistaratitlum Örn Ævars mætti t.d.. nefna að hann varð fyrst Íslandsmeistari í höggleik 2001 og svo varð hann Íslandsmeistari í holukeppni 2006.

Örn Ævar á sæti í stjórn GS. Hann er kvæntur Kristínu Þóru Möller.

Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins hér að neðan til þess að óska honum til hamingju með daginn:

Örn Ævar Hjartarson, GS, á 2. braut á Hólmsvelli, í Leiru. Mynd: Golf 1

Örn Ævar Hjartarson (45 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Judy Rankin, 18. febrúar 1945 (78 ára); Friðrik Kristjánsson, 18. febrúar 1961 (62 ára); Hjalti Árnason, 18. febrúar 1963 ( ára); Hraunkot Keilir, 18. febrúar 1967 (56 ára); Halla Himintungl, 18. febrúar 1970 (53 ára); Thomas Björn, 18. febrúar 1971 (52 ára); Andrew Johnston, 18. febrúar 1989 (34 ára – sigraði m.a. á Opna spænska þ. 16. apríl 2016 á Evróputúrnum); Bergrós Fríða Jónasdóttir, GKG, 18. febrúar 1997 (26 ára) ….. og …..

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum, sem og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is