Ölöf Baldursdóttir, GK. Mynd: Í einkaeigu
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 1. 2017 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Ólöf Baldursdóttir – 1. nóvember 2017

Afmæliskylfingur dagsins er Ólöf Baldursdóttir. Ólöf er fædd 1. nóvember 1967 og á því stórafmæli í dag!!! Ólöf er í Golfklúbbnum Keili og m.a. í kvennanefnd Keilis.

Ólöf er góður kylfingur og dugleg að taka þátt í mótum m.a. sigraði hún í Lancôme mótinu á Hellu 5. maí 2013.

F.v.: Ólöf Ásta Farestveit, GK; Ólöf Baldursdóttir, GK og Kristín Fjóla Gunnlaugsdóttir, GK á Vestmannaeyjavelli sumarið 2016. Mynd: Í einkaeigu

F.v.: Ólöf Ásta Farestveit, GK; Ólöf Baldursdóttir, GK og Kristín Fjóla Gunnlaugsdóttir, GK á Vestmannaeyjavelli sumarið 2016. Mynd: Í einkaeigu

Ólöf er gift Arnari H. Ævarssyni og á 3 börn.

Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins hér að neðan til þess að óska henni til hamingju með afmælið:

Ólöf Baldursdóttir (á mynd), GK, var efst á 5. púttmóti Keiliskvenna, ásamt Eddu Jónasdóttur (sjá mynd hér fyrir neðan). Myndir: Golf 1. Kvennanefnd Keilis hvetur allar konur klúbbsins til þess að fjölmenna í Öskudagspúttmótið í kvöld!

Ólöf Baldursdóttir (Innilega til hamingju með stórafmælið!!!)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Gary Player, 1. nóvember 1935 (82 ára); GP Galleri Art 1. nóvember 1954 (63 ára); Guðmundur Þór Magnússon 1. nóvember 1958 (59 ára); Sigurþór Heimisson Sóri, 1. nóvember 1962 (55 ára); Björk Unnarsdóttir, 1. nóvember 1966 (51 árs);  Ólöf Baldursdóttir, GK, 1. nóvember 1967 (50 ára STÓRAFMÆLI!!!); Stephen Gallacher, f. 1. nóvember 1974 (43 ára afmæli); Listnámsbraut Fjölbrautaskólans Í Breiðholti , 1. nóvember 1975 (42 ára); Sara Ardstrom, 1. nóvember 1988 (29 ára). …… og …….. Art Postulín og Lexi Skart og Kristín Jónsdóttir

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is