Óli Kristján tekur hér við verðlaunum á meistaramóti GHH. Mynd: Í einkaeigu
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 15. 2014 | 15:00

Afmæliskylfingur dagsins: Óli Kristján Benediktsson – 15. júlí 2014

Afmæliskylfingur dagsins er Óli Kristján Benediktsson.  Óli Kristján er fæddur 15. júlí 1991 og því 23 ára í dag. Hann er í Golfklúbbi Hafnar í Hornafirði (GHH) og er núverandi klúbbmeistari klúbbsins 2014 og jafnframt klúbbmeistari 2012, en varð í 3. sæti á meistaramótinu í fyrra, 2013. Komast má á heimasíðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan:

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Stephen Dodd, 15. júlí 1966 (48 ára); Marcel Siem, 15. júlí 1980 (34 ára);  Carmen Alonso,  15. júlí 1984 (30 ára stórafmæli); Jackie Stoelting, 15. júlí 1986 (28 ára)  ….. og ……

Andy Scheer (45 ára)

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is