Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 5. 2014 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Ólafur Björn Loftsson – 5. ágúst 2014

Í dag er mikill afmælisdagur stórkylfinga!!! Afmæliskylfingur dagsins eru atvinnumaðurinn í golfi Ólafur Björn Loftsson, NK. Ólafur Björn er fæddur 5. ágúst 1987 og er því 27 ára í dag.  Ólafur Björn varð í 1. sæti í fokeppni Einvígisins á Nesinu í gær. Það þarf annars vart að kynna Ólaf Björn, Íslandsmeistara í höggleik 2009 en lesa má eldra viðtal Golf 1 við Ólaf Björn með því að SMELLA HÉR:

Komast má á facebook síður afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan:

Olafur Loftsson (27 ára – Innilega til hamingju með afmælið!)
Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Katsunari Takahashi, 5. ágúst 1950 (64 ára); Ólafur Gylfason, golfkennari GA, 5. ágúst 1968 (46 ára); Anna Rawson, 5. ágúst 1981 (33 ára); Paula Creamer, 5. ágúst 1986 (28 ára); Shanshan Feng, 5. ágúst 1989 (25 ára)
….. og …..

Gylfi Rútsson (52 ára)

Golf 1 óskar afmæliskylfingunum innilega til hamingju með stórafmælið og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með daginn!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is