Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 5. 2017 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Ólafur Björn Loftsson – 5. ágúst 2017

Afmæliskylfingur dagsins er Ólafur Björn Loftsson, GKG. Ólafur Björn er fæddur 5. ágúst 1987 og á því 30 ára stórafmæli í dag!!! Ólafur Björn varð í 1. sæti í fokeppni Einvígisins á Nesinu 2014.. Það þarf annars vart að kynna Ólaf Björn, Íslandsmeistara í höggleik 2009 en lesa má eldra viðtal Golf 1 við Ólaf Björn með því að SMELLA HÉR: Komast má á facebook síðu Ólafs Björns til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan

Ólafur Björn Loftsson. Mynd: Í einkaeigu

Ólafur Björn Loftsson. Mynd: Í einkaeigu

Ólafur Björn Loftsson – Innilega til hamingju með 30 ára stórafmælið!!!

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Silla Ólafsdóttir, 5. ágúst 1949 (68 ára); Katsunari Takahashi, 5. ágúst 1950 (67 ára); Ásdís Lilja Emilsdóttir, 5. ágúst 1956 (61 árs); Gylfi Rútsson, 5. ágúst 1962 (55 ára); Ólafur Gylfason, golfkennari GA, 5. ágúst 1968 (49 ára); Ragnheiður Stephensen, 5. ágúst 1970 (47 ára); Gauja Hálfdanardóttir, 5. ágúst 1973 (44 ára); Jón Karl Björnsson, GK, 5. ágúst 1975 (42 árs); Anna Rawson, 5. ágúst 1981 (36 ára); Paula Creamer, 5. ágúst 1986 (31 árs); Ólafur Björn Loftsson, GKG, 5. ágúst 1987 (30 ára STÓRAFMÆLI!!!!); Shanshan Feng, 5. ágúst 1989 (28 ára); Erna Lundberg, 5. ágúst 1996 (21 árs) … og …

Golf 1 óskar afmæliskylfingunum innilega til hamingju með stórafmælið og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með daginn!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is