
Afmæliskylfingur dagsins: Ólafía Þórunn Kristinsdóttir – 15. október 2022
Afmæliskylfingur dagsins á Golf 1 er atvinnukylfngurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR.
Hún er fædd 15. október 1992 og á því 30 ára stórafmæli í dag!!!
Ólafía spilaði í bandaríska háskólagolfinu með kvennagolfliði Wake Forest (2010-2014).
Ólafía er fyrirmynd og brautryðjandi í íslensku kvennagolfi á svo óramarga vegu.
Ólafía Þórunn er Íslandsmeistari í holukeppni 2013 og Íslandsmeistari höggleik 2014 og 2016.
Hún er sá íslenski kvenkylfingur og reyndar bara kylfingur almennt, sem spilað hefir í flestum risamótum. Besti árangur Ólafíu Þórunnar í risamótum var á Evían, en þar varð hún T-48 og komst fyrst íslenskra kylfinga í gegnum niðurskurð á risamóti!!!
Ólafía Þórunn er sá íslenski kvenkylfingur sem hefir náð hæst á Rolex-heimslista kvenkylfinga, í 184. sæti.
Hér er aðeins tæpt á fáu sem Ólafía Þórunn hefir afrekað.
Sjá má eldra viðtal Golf 1 við Ólafíu Þórunni með því að SMELLA HÉR:
Komast má á facebooksíðu afmæliskylfingsins hér að neðan til þess að óska henni til hamingju með afmælið

Photo by Arnaldur Halldórsson / 2019 Warner Bros. Entertainment Inc.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir – Innilega til hamingju með 30 ára stórafmælið!
Aðrir frægir kylfingar, sem eiga afmæli í dag eru: Georgiana Millington Bishop f. 15. október 1898 – d. 1. september 1971; Earl Richard Stewart, Jr. (f. 15. október 1921 – d. 11. júlí 1990); Siggi Helgason, 15. október 1935 (87 ára); Ingibjörg Kristjánsdóttir, GK, 15. október 1957 (65 ára); Ove Bertil Sellberg, f. 15. október 1959 (63 ára); Þór Sigurðsson, GM, 15. október 1964 (58 ára); María Hjorth, 15. október 1973 (49 ára); Carl Richard Stanley Johnson, f. 15. október 1976 (46 ára); Jimin Jeong f. 15. október 1984 (38 ára); Eygló Myrra Óskarsdóttir, GO, 15. október 1991 (31 árs); Kyu Jung Baek, frá S-Kóreu – vann fyrsta sigur sinn á LPGA á LPGA KEB – Hana Bank Championship á Ocean golfvelli, Sky 72 klúbbsins, í Incheon, S-Kóreu 19. október 2014, 15. október 1995 (27 ára); Alma Rún Ragnarsdóttir, GKG, 15. október 2001 (21 árs); Sigríður María Jónsdóttir, GO …. og ….
Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!
Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is
- ágúst. 13. 2023 | 21:00 Íslandsmótið 2023: Logi hlaut Björgvinsskálina!
- ágúst. 13. 2023 | 19:30 Íslandsmótið 2023: Ragnhildur og Logi Íslandsmeistarar!!!
- ágúst. 12. 2023 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (32/2023)
- ágúst. 7. 2023 | 23:00 Birgir Björn sigurvegari Einvígisins á Nesinu 2023
- ágúst. 1. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Guðlaugur Gíslason og Guðmundur Liljar Pálsson – 1. ágúst 2023
- ágúst. 1. 2023 | 08:18 Ryder Cup 2023: Stewart Cink 5. varafyrirliði liðs Bandaríkjanna
- júlí. 31. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Kolbrún Rut Evudóttir – 31. júlí 2023
- júlí. 31. 2023 | 12:00 European Young Masters: Markús Marelsson varð í 2. sæti!!! – Glæsilegur!!!
- júlí. 30. 2023 | 23:59 PGA: Lee Hodges sigurvegari 3M Open
- júlí. 30. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Bergsteinn Hjörleifsson – 30. júlí 2023
- júlí. 29. 2023 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (30/2023)
- júlí. 29. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Signý Marta Böðvarsdóttir – 29. júlí 2023
- júlí. 28. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Hinrik Gunnar Hilmarsson og Þórdís Lilja Árnadóttir – 28. júlí 2023
- júlí. 27. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Jordan Spieth – 27. júlí 2023
- júlí. 26. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Mick Jagger, Allen Doyle, Sigríður Rósa Bjarnadóttir og Daniel Hillier – 26. júlí 2023