Ragnheiður Jónsdóttir | október. 15. 2019 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Ólafía Þórunn Kristinsdóttir – 15. október 2019

Afmæliskylfingur dagsins á Golf 1 er atvinnukylfngurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR.

Hún er fædd 15. október 1992 og því 27 ára í dag.

Ólafía spilaði í bandaríska háskólagolfinu með kvennagolfliði Wake Forest (2010-2014).

Ólafía er fyrirmynd og brautryðjandi í íslensku kvennagolfi á svo óramarga vegu.

Ólafía Þórunn er Íslandsmeistari í holukeppni 2013 og Íslandsmeistari höggleik 2014 og 2016.

Hún er sá íslenski kvenkylfingur og reyndar bara kylfingur almennt, sem spilað hefir í flestum risamótum. Besti árangur Ólafíu Þórunnar í risamótum var á Evían, en þar varð hún T-48 og komst fyrst íslenskra kylfinga í gegnum niðurskurð á risamóti!!!

Ólafía Þórunn er sá íslenski kvenkylfingur sem hefir náð hæst á Rolex-heimslista kvenkylfinga, í 184. sæti.

Hér er aðeins tæpt á fáu sem Ólafía Þórunn hefir afrekað.

Sjá má eldra viðtal Golf 1 við Ólafíu Þórunni með því að SMELLA HÉR:

Komast má á facebooksíðu afmæliskylfingsins hér að neðan til þess að óska henni til hamingju með afmælið

Photo by Arnaldur Halldórsson / 2019 Warner Bros. Entertainment Inc.

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir – Innilega til hamingju með 27 ára afmælið!

Aðrir frægir kylfingar, sem eiga afmæli í dag eru: Georgiana Millington Bishop f. 15. október 1898 – d. 1. september 1971; Earl Richard Stewart, Jr. (f. 15. október 1921 – d. 11. júlí 1990); Siggi Helgason, 15. október 1935 (84 ára); Ingibjörg Kristjánsdóttir, GK, 15. október 1957 (62 ára); Ove Bertil Sellberg, f. 15. október 1959 (60 ára MERKISAFMÆLI!!!); Þór Sigurðsson, GM, 15. október 1964 (55 ára); María Hjorth, 15. október 1973 (46 ára); Carl Richard Stanley Johnson, f. 15. október 1976 (43 ára); Jimin Jeong f. 15. október 1984 (35 ára); Eygló Myrra Óskarsdóttir, GO, 15. október 1991 (28 ára); Kyu Jung Baek, frá S-Kóreu – vann fyrsta sigur sinn á LPGA á LPGA KEB – Hana Bank Championship á Ocean golfvelli, Sky 72 klúbbsins, í Incheon, S-Kóreu 19. október 2014, 15. október 1995 (24 ára); Alma Rún Ragnarsdóttir, GKG, 15. október 2001 (18 ára) …. og …. Sigríður María Jónsdóttir, GO

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is