Afmæliskylfingar dagsins: Ingibjörg og Ólafía Þórunn – 15. október 2017
Afmæliskylfingar dagsins á Golf 1eru tveir: atvinnukylfingurinn okkar, Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR og LPGA, sem við erum öll svo stolt af og Ingibjörg Kristjánsdóttir, GK.
Ingibjörg Kristjánsdóttir er fædd 15. október 1957 og á því 60 ára merkisafmæli í dag. Hún er í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði. Ingibjörg er gift Hinrik Kristjánssyni. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska henni til hamingju með merkisafmælið hér að neðan

Ingibjörg Kristjánsdóttir
Ingibjörg Kristjánsdóttir – Innilega til hamingju með 60 ára merkisafmælið!!!
****************************************************************************
Þetta er stórafmælisdagur hjá Ólafíu Þórunni, en hún er fædd 15. október 1992 og því 25 ára í dag.
Hún spilaði í bandaríska háskólagolfinu með kvennagolfliði Wake Forest (2010-2014) og má sjá afrek Ólafíu Þórunnar þar með því að SMELLA HÉR:
Á háskólaárum kynntist hún manninum sínum, Thomas Bojanowski, en þau búa í Koblenz í Þýskalandi.
Ólafía er fyrirmynd og brautryðjandi í íslensku kvennagolfi á svo óramarga vegu.
Sem stendur spilar hún á bestu kvengolfmótaröð heims, LPGA, hefir nýlokið við að spila í 22. móti sínu þar og spilaði þar áður á næstbestu mótaröð heims LET.
Ólafía Þórunn er Íslandsmeistari í holukeppni 2013 og Íslandsmeistari höggleik 2014 og 2016.
Hún er sá íslenski kvenkylfingur og reyndar bara kylfingur almennt, sem spilað hefir í flestum risamótum eða samtals 3 (öllum nú í ár, Opna bandaríska, Opna breska og Evían risamótinu). Besti árangur Ólafíu Þórunnar í risamótum var á Evían, en þar varð hún T-48 og komst fyrst íslenskra kylfinga í gegnum niðurskurð á risamóti!!!
Ólafía Þórunn er sá íslenski kvenkylfingur sem hefir náð hæst á Rolex-heimslista kvenkylfinga, en sem stendur er hún í 184. sæti.
Hér er aðeins tæpt á fáu sem Ólafía Þórunn hefir afrekað.
Sjá má eldra viðtal Golf 1 við Ólafíu Þórunni með því að SMELLA HÉR:
Komast má á facebooksíðu afmæliskylfingsins hér að neðan til þess að óska henni til hamingju með stórafmælið

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir – Innilega til hamingju með 25 ára stórafmælið!
Aðrir frægir kylfingar, sem eiga afmæli í dag eru: Georgiana Millington Bishop f. 15. október 1898 – d. 1. september 1971; Earl Richard Stewart, Jr. (f. 15. október 1921 – d. 11. júlí 1990); Siggi Helgason, 15. október 1935 (82 ára); Ingibjörg Kristjánsdóttir, GK, 15. október 1957 (60 ára STÓRAFMÆLI!!!); Ove Bertil Sellberg, f. 15. október 1959 (58 ára); Þór Sigurðsson, GM, 15. október 1964 (53 ára); María Hjorth, 15. október 1973 (44 ára); Carl Richard Stanley Johnson, f. 15. október 1976 (41 árs merkisafmæli!!!); Jimin Jeong f. 15. október 1984 (33 ára); Eygló Myrra Óskarsdóttir, GO, 15. október 1991 (26 ára); Kyu Jung Baek, frá S-Kóreu – vann fyrsta sigur sinn á LPGA á LPGA KEB – Hana Bank Championship á Ocean golfvelli, Sky 72 klúbbsins, í Incheon, S-Kóreu 19. október 2014, 15. október 1995 (22 ára); Alma Rún Ragnarsdóttir, GKG, 15. október 2001 (16 ára) …. og …. Sigríður María Jónsdóttir, GO
Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!
Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
