
Afmæliskylfingur dagsins: Örn Ævar Hjartarson – 40 ára – 18. febrúar 2018
Afmæliskylfingur dagsins er Örn Ævar Hjartason. Hann er fæddur 18. febrúar 1978 og á því 40 ára merkisafmæli í dag!!!
Eins og alltaf þegar miklir afrekskylfingar, líkt og Örn Ævar, eiga afmæli er erfitt nema rétt hægt að tæpa á nokkrum helstu afrekum viðkomandi. Þegar minnst er á Örn Ævar er ekki annað hægt en að geta allra vallarmetanna sem hann á, en það frægasta setti hann eflaust 1998 þegar hann spilaði Old Course í sjálfri vöggu golfíþróttarinnar St. Andrews á 60 höggum, sem er vallarmet! Eins á Örn Ævar ýmis vallarmet hér heima t.a.m. -10 undir pari, þ.e. 62 högg í Leirunni, 2009; -7 undir pari 63 högg á gamla Kirkjubólsvelli hjá GSG, 2009; -5 undir pari, þ.e. 66 högg á gamla Hamarsvelli í Borgarnesi, 2006 og þá er bara fátt eitt talið.
Það eru líka fáir sem geta státað af því að hafa sigrað sjálfan Luke Donald í holukeppni, líkt og Örn Ævar.
Af Íslandsmeistaratitlum Örn Ævars mætti t.d.. nefna að hann varð fyrst Íslandsmeistari í höggleik 2001 og svo varð hann Íslandsmeistari í holukeppni 2006.
Örn Ævar á sæti í stjórn GS. Hann er kvæntur Kristínu Þóru Möller.
Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins hér að neðan til þess að óska honum til hamingju með daginn:
Örn Ævar Hjartarson (40 ára – Innilega til hamingju með merkisafmælið!!!)
Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Judy Rankin, 18. febrúar 1945 (73 ára); Friðrik Kristjánsson, 18. febrúar 1961 (57 ára); Hjalti Árnason, 18. febrúar 1963 (55 ára); Hraunkot Keilir, 18. febrúar 1967 (51 árs); Halla Himintungl, 18. febrúar 1970 (48 ára); Thomas Björn, 18. febrúar 1971 (47 ára); Andrew Johnston, 18. febrúar 1989 (29 ára – sigraði m.a. á Opna spænska þ. 16. apríl 2016 á Evróputúrnum); Bergrós Fríða Jónasdóttir, GKG, 18. febrúar 1997 (21 árs)
Golf 1 óskar afmæliskylfingnum, sem og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!
Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is
- febrúar. 23. 2021 | 22:00 Tiger lenti í bílslysi í Genesis GV80
- febrúar. 2. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Jenny Sigurðardóttir – 2. febrúar 2021
- febrúar. 1. 2021 | 18:00 PGA: Reed sigraði á Farmers Insurance Open
- febrúar. 1. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Hildur Kristín Þorvarðardóttir – 1. febrúar 2021
- febrúar. 1. 2021 | 08:00 Evróputúrinn: Casey sigraði á Omega Dubai Desert Classic
- janúar. 31. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Justin Timberlake – 31. janúar 2021
- janúar. 30. 2021 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (5/2021)
- janúar. 30. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Payne Stewart ——- 30. janúar 2021
- janúar. 29. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Erlingur Snær Loftsson – 29. janúar 2021
- janúar. 29. 2021 | 14:45 Evróputúrinn: Detry leiðir í hálfleik á Omega Dubai Desert Classic
- janúar. 28. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Þórður Sigurel Arnfinnsson – 28. janúar 2021
- janúar. 28. 2021 | 12:00 Greg Norman selur „húsið“ sitt í Flórída
- janúar. 27. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Bryce Moulder og Mike Hill – 27. janúar 2021
- janúar. 26. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Karine Icher —— 26. janúar 2021
- janúar. 26. 2021 | 07:30 PGA Championship fer fram í Southern Hills 2022 í stað Trump Bedminster