Örn Ævar Hjartarson. Mynd: Golf 1.
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 18. 2016 | 18:00

Afmæliskylfingur dagsins: Örn Ævar Hjartarson – 18. febrúar 2016

Afmæliskylfingur dagsins er Örn Ævar Hjartarson, sem fæddur er 18. febrúar 1978 og á því 38 ára afmæli í dag.

Eins og alltaf þegar miklir afrekskylfingar, líkt og Örn Ævar, eiga afmæli er erfitt nema rétt hægt að tæpa á nokkrum helstu afrekum viðkomandi. Þegar minnst er á Örn Ævar er ekki annað hægt en að geta allra vallarmetanna sem hann á, en það frægasta setti hann eflaust 1998 þegar hann spilaði Old Course í sjálfri vöggu golfíþróttarinnar St. Andrews á 60 höggum, sem er vallarmet! Eins á Örn Ævar ýmis vallarmet hér heima t.a.m. -10 undir pari, þ.e. 62 högg í Leirunni, 2009; -7 undir pari 63 högg á gamla Kirkjubólsvelli hjá GSG, 2009; -5 undir pari, þ.e. 66 högg á gamla Hamarsvelli í Borgarnesi, 2006 og þá er bara fátt eitt talið.

Það eru líka fáir sem geta státað af því að hafa sigrað sjálfan Luke Donald í holukeppni, líkt og Örn Ævar.

Af Íslandsmeistaratitlum Örn Ævars mætti t.d.. nefna að hann varð fyrst Íslandsmeistari í höggleik 2001 og svo varð hann Íslandsmeistari í holukeppni 2006.

Örn Ævar á sæti í stjórn GS. Hann er kvæntur Kristínu Þóru Möller.

Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins hér að neðan til þess að óska honum til hamingju með daginn:

1-a-oern

Örn Ævar Hjartarson (38 ára – Innilega til hamingju með daginn!!!)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Judy Rankin, 18. febrúar 1945 (71 árs); Friðrik Kristjánsson, 18. febrúar 1961 (55 ára);  Hjalti Árnason, 18. febrúar 1963 (53 ára); Hraunkot Keilir, 18. febrúar 1967 (49 ára); Halla Himintungl, 18. febrúar 1970 ( 46 ára);  Thomas Björn, 18. febrúar 1971 (45 ára);  Andrew Johnston, 18. febrúar 1989 (27 ára – sigraði m.a. á Opna spænska þ. 16. apríl 2016 á Evróputúrnum); Bergrós Fríða Jónasdóttir, GKG, 18. febrúar 1997 (19 ára)

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum, sem og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is