Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 14. 2012 | 13:00

Afmæliskylfingur dagsins: Oddgeir Þór Gunnarsson – 14. júní 2012

Afmæliskylfingur dagsins er  Oddgeir Þór Gunnarsson.  Oddgeir Þór er fæddur 14. júní 1972 og á því 40 ára stórafmæli í dag!!!! Oddgeir Þór er frekar þekktur fyrir að vera mikill hlaupari, en hann er líka golfáhugamaður.

Oddgeir eftir hlaup í New York Road Runners.
Oddgeir Þór er kvæntur Karen Ósk Gunnarsdóttur.
Komast má á facebook síðu afmæliskylfings til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan:

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Teruo Sugihara, 14. júní 1937 – d. 28. desember 2011. Japönsk golfgoðsögn; Catherine Rita Panton-Lewis, 14. júní 1955 (57 ára); Stéphanie Arricau, 14. júní 1973 (39 ára); Christine Song, 14. júní 1991 (21 árs) ….. og …..

Finnur Jóns (33 ára)

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is